

Erling Haaland hefur fest kaup á glæsilegu stórhýsi í Englandi fyrir 6,2 milljónir punda.
Framherji Manchester City keypti eignina síðasta sumar samkvæmt fasteignaskjölum og er um að ræða fjögurra hæða höll með tíu svefnherbergjum.
Húsið er staðsett í Cheshire og er sagt hafa allt sem nútíma atvinnumaður í knattspyrnu gæti óskað sér. Á lóðinni eru meðal annars stöðuvatn, útisundlaug, stórir garðar, hesthús, vagnhús og jafnvel risastórt tréhús.
Haaland hefur einnig fengið leyfi til að byggja fjögurra bíla bílskúr fyrir ofurbílasafn sitt, sem er talið vera um 10 milljóna punda virði. Þar á meðal er sjaldgæfur Bugatti Tourbillon sem kostar um fjórar milljónir punda.
Talið er að Haaland hafi verið að leita að öruggum og afskekktum stað til að setjast að með kærustu sinni, Isabel Haugseng Johansen, og barni þeirra.
Heimildarmaður segir eignina gefa honum fullkomið næði til að slaka á utan vallar.