fbpx
Þriðjudagur 03.febrúar 2026
Pressan

Breyta fyrri þáttum af Stranger Things

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 23. júlí 2022 13:00

Stranger Things er á Netflix og er ein vinsælasta þáttaröð efnisveitunnar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórða þáttaröðin af Stranger Things hefur heldur betur slegið í gegn hjá Netflix og trónir á toppnum yfir það efni sem fær mest áhorf þessar vikurnar.

Í samtali við Variety sögðu bræðurnir Matt og Russ Duffer, sem eru höfundar þáttanna, að þeir hafi fengið sérstakt leyfi hjá Netflix til að breyta ákveðnum atriðum í fyrri þáttaröðum.

„Ég held að við munum taka þetta eins og George Lucas,“ sagði Matt í viðtalinu og vísaði þar til velþekktrar þarfar Lucas, sem er maðurinn á bak við Stjörnustríðsmyndirna, til að breyta kvikmyndum sínum eftir á.

Eitt vandræðalegasta atriðið sem þeir bræður hafa þurft að takast á við er að í fjórðu þáttaröðinni kemur fram að persónan sem Noah Schnaps leikur eigi afmæli í maí en í annarri þáttaröðinni kemur fram að afmælisdagurinn sé 22. mars.

Bræðurnir hafa áður sagt, einnig í samtali við Variety, að þetta hafi verið leyst með því að tala yfir það sem sagt er í annarri þáttaröðinni þannig að „maí“ hafi verið talað yfir „mars“.

Í nýja viðtalinu segja bræðurnir að þetta sé ekki það eina sem þeir hafi breytt. „Við höfum George Lucasað atriði sem fólk veit ekki um,“ sagði Matt.

Þeir vildu ekki skýra frá hvaða breytingar þetta væru og sögðu að fólk yrði bara að horfa á þættina og finna út úr því. Þeir fullyrtu þó að þetta væru ekki róttækar breytingar, aðallega sjónrænar breytingar sem hafi ekki áhrif á söguþráðinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Æskuástin mín er í langtímasambandi við netsvikahrapp“

„Æskuástin mín er í langtímasambandi við netsvikahrapp“
Pressan
Í gær

Ættirðu að nota gervigreindina til að skipuleggja frí?

Ættirðu að nota gervigreindina til að skipuleggja frí?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sláandi afhjúpun í Epstein-skjölunum – Bill Gates fékk kynsjúkdóm frá „rússneskum stúlkum“ og reyndi að lauma sýklalyfjum ofan í eiginkonuna

Sláandi afhjúpun í Epstein-skjölunum – Bill Gates fékk kynsjúkdóm frá „rússneskum stúlkum“ og reyndi að lauma sýklalyfjum ofan í eiginkonuna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vann í lottóinu og breytti húsinu sínu í dópverksmiðju – Fékk þungan dóm

Vann í lottóinu og breytti húsinu sínu í dópverksmiðju – Fékk þungan dóm
Pressan
Fyrir 4 dögum

Tesla hættir framleiðslu á þessum tveimur bílum

Tesla hættir framleiðslu á þessum tveimur bílum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Nýjar vendingar í máli unglings sem hvarf fyrir áratug – „Jacob er fundinn“

Nýjar vendingar í máli unglings sem hvarf fyrir áratug – „Jacob er fundinn“