fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026

12 leiðir til að komast yfir sambandsslit

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 19. janúar 2016 23:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ömurlegt að slíta ástarsambandi og ef þú ert hvorki vélmenni né siðblindingi eru líkur á að í kjölfarið fylgi erfiður tími. Þetta á við jafnvel þó að þú hafir haft frumkvæði að slitunum og þau séu kærkomin eða jafnvel léttir. Þó sýna rannsóknir að þeim sem ákveða ekki að slíta sambandinu, heldur er „dömpað“, líður sýnu verr en þeim sem taka ákvörðunina.

Hér eru nokkur nytsamleg ráð handa þeim sem eru nýlega hættir í sambandi. Elskurnar, þetta verður betra með tímanum!

  1. Þú munt ganga í gegnum alls konar tilfinningar. Leyfðu þér það og sættu þig við það.
    Hugsaðu vel um þig. Gættu þess að fá góðan svefn, borðaðu hollan mat og hreyfðu þig. Þetta skiptir máli.
  2. Forðastu að detta brjálæðislega í það, fara á eiturlyfjatripp eða að stunda kynlíf í hefndarskyni.
  3. Ekki nöldra í fyrrverandi, ekki hóta, væla eða vera með vesen. Þú getur ekki pínt einhvern til að elska þig.
  4. Ekki sitja um fyrrverandi á facebook og öðrum samfélagsmiðlum. Það mun bara auka á vanlíðan þína. Feldu viðkomandi frá tímalínunni þinni eða gerðu pásu á tengslum ykkar á meðan þú jafnar þig.
  5. Reyndu að umgangast vini sem geta stutt þig á jákvæðan hátt og eru inni í málunum.
    Ekki hika við að leita hjálpar fagfólks. Sálfræðingar eru til dæmis alveg frábærir í að styðja fólk í gegn um svona lífsbreytingar.
  6. Það er eðlilegt að þér líði undarlega. Þú ert búin/n að missa stóran part úr lífi þínu – sérstaklega ef sambandið var langt.
  7. Byggðu þig smám saman upp með því að enduruppgötva hluti sem þú nýtur og hvað gerir þig að einstakling – frekar en hluta af heild. Sambandsslit geta verið einstakt tækifæri til vaxtar.
  8. Reyndu að sjá það sem er jákvætt við endalok sambandsins, til dæmis að byrja upp á nýtt, fá meiri tíma til að sinna hlutum sem þú elskar og svo framvegis. Athugaðu hvort þú getur fundið fyrir létti, frelsi, bjartsýni og valdi til að taka ákvarðanir um þitt eigið líf.
  9. Tjáðu þig! Sumir skrifa, aðrir tala. Reyndu að koma tilfinningunum, jákvæðum sem neikvæðum, í orð í stað þess að loka þær inni.
  10. Ekki hræðast það að hitta nýtt fólk… stefnumót og ösambönd geta haft ljómandi jákvæð áhrif á sjálfsmyndina og hjálpað þér að færast fram á við.
  11. Ef fyrrverandi fer að hitta aðra manneskju, reyndu þá að halda þig til hlés og sýndu nýja sambandinu virðingu. Ef þér tekst þetta mun þér líða betur þegar til lengri tíma er litið.
  12. Gefðu þér tíma til að jafna þig. Sumir segja að mánuður fyrir hvert ár sem þú varst í sambandi sé raunhæfur tími.

-Ragnheiður Eiríksdóttir
Birtist fyrst á DV.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Leikmenn hafi aldrei velt fyrir sér framtíð Þorsteins í starfi – „Það er enginn tími til að ræða hlutina“

Leikmenn hafi aldrei velt fyrir sér framtíð Þorsteins í starfi – „Það er enginn tími til að ræða hlutina“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Þórdís Lóa stefnir norður í land

Þórdís Lóa stefnir norður í land
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Carragher varpar fram tölfræði sem stuðningsmenn Arsenal vilja ekki sjá fyrir stórleikinn í dag

Carragher varpar fram tölfræði sem stuðningsmenn Arsenal vilja ekki sjá fyrir stórleikinn í dag
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum
Brotist inn í kirkju
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Uppgötvuðu ný heilsufarsáhrif haframjöls

Uppgötvuðu ný heilsufarsáhrif haframjöls
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“
433Sport
Í gær

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“
Pressan
Í gær

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.