fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Nautalundir og öryggisvörður fengu að kenna á síbrotamanni í Nettó

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 3. mars 2022 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður var í dag fundinn sekur í Héraðsdómi Reykajvíkur fyrir brot í Nettó-verslun í Þönglabakka. Var maðurinn sakaður um að hafa stolið nautalundum úr versluninni að andvirði tæpar 17 þúsund krónur, og að hafa gengið í skrokk á öryggisverði, sparkað í rass hans og handlegg, tekið hann kverkataki og slegið hann í andlit. Var öryggisvörðurinn með nokkra áverka eftir árásina.

Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir ökulagabrot.

Maðurinn játaði brot sín skýlaust enn hann á að baki langan sakaferil og var ítrekun brota honum til refsiauka.

Var maðurinn, sem er tæplega 35 ára gamall, dæmdur í sex mánaða fangelsi, óskilorðsbundið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Brexit veldur Lundúnalögreglunni erfiðleikum við að hafa hendur í hári grunaðs morðingja Madeleine McCann

Brexit veldur Lundúnalögreglunni erfiðleikum við að hafa hendur í hári grunaðs morðingja Madeleine McCann
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Einar segir skipulagsstefnu höfuðborgarsvæðisins mannfjandsamlega – „Engum hollt að búa við ónóga birtu“

Einar segir skipulagsstefnu höfuðborgarsvæðisins mannfjandsamlega – „Engum hollt að búa við ónóga birtu“