fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Áður óþekkt myndband af árásinni á World Trade Center birt – Sýnir atburðina frá nýju sjónarhorni

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 3. mars 2022 20:30

Hryðjuverkin 11. september 2001.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hryðjuverkaárásirnar á New York þann 11. september 2001 renna væntanlega engum úr minni sem upplifði þær, hvort sem viðkomandi var í návígi við vettvanginn eða fylgdist með í sjónvarpi. Tveimur flugvélum var flogið inn í turnana tvo sem hrundu síðan til grunna. Nú hefur nýtt og áður óséð myndband af þessum atburðum verið birt á YouTube og hefur það vakið mikla athygli.

Það er um níu mínútur á lengd og var tekið af Kevin Westley sem var staddur á bát skammt frá byggingunum þegar árásin var gerð. Hann birti myndbandið raunar á YouTube fyrir um 20 árum en stillti það þannig að aðeins hann hafði aðgang að því. Hann áttaði sig á þessu nýlega og breytti þá stillingunni þannig að allir geti séð myndbandið.

Það byrjar eftir að fyrri flugvélinni var flogið á norðurturninn og sýnir eldhafið í henni.

Á upptökunni má heyra viðbrögð nærstaddra sem var að vonum illa brugðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Í gær

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið