fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Segir pínlegt hvað ráðherra er illa að sér – „Hvað er gert við lögbrjóta?“

Erla Hlynsdóttir
Miðvikudaginn 2. febrúar 2022 18:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Annan daginn í röð voru heitar umræður á Alþingi um þá stöðu sem upp er komin nú þegar Útlendingastofnun hefur trassað að afhenda Alþingi umsóknir sem borist hafa um veitingu íslensks ríkisborgararéttar, samkvæmt fyrirmælum frá innanríkisráðuneytinu.

Þingmenn úr Pírötum, Viðreisn, Flokki fólksins, Samfylkingunni og stjórnarflokknum Vinstri grænum gagnrýndu þetta harðlega í dag þegar málið var rætt í fjórða sinn. 

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, sagði „svívirðilegt að dómsmálaráðherra veiti því atbeina að ríkisstofnun fari ekki að lögum“ og að þetta varði við ráðherraábyrgð.

Hún benti á að þeir sem eiga þær umsóknir um ríkisborgararétt sem bíða afgreiðslu séu þegar búnir að greiða fyrir þær. „Það er búið að rukka fólk, það er búið að taka gjald af fólki af Útlendingastofnun fyrir að vinna þessar umsóknir.“ Þá sagðist hún sem nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd ætla að skoða með nefndinni hvernig það geti staðist að ríkisstofnun taki gjald fyrir þjónustu sem síðan er ekki veitt.

Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar, kom í pontu og las úr lögum um veitingu ríkisborgararéttar þar sem segir:

6. gr.

– Alþingi veitir ríkisborgararétt með lögum.
– Áður en umsókn um ríkisborgararétt er lögð fyrir Alþingi skal Útlendingastofnun fá um hana umsögn lögreglustjóra á dvalarstað umsækjanda. Enn fremur skal Útlendingastofnun gefa umsögn um umsóknina.

Þess má geta að það hefur verið í lögum frá árinu 1952 að Alþingi geti veitt ríkisborgararétt með lögum.

„Síðan kemur hæstvirtur ráðherra bara með skæting í blaðagrein um að verið sé að búa til einhverja forréttindaröð hér inni á Alþingi. En það er verið að brjóta lög og ég spyr: Hvað er gert við lögbrjóta?“ spurði Guðbrandur og uppskar „Heyr, heyr“ úr þingsal, en þarna vísaði hann í grein sem Jón Gunnarsson, innanríkisráðherra, skrifaði um málið og birtist á Visir.is þann 26. janúar og ber heitið Ríkisborgararéttur og Alþingi. 

Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður allsherjar- og menntamálanefndar sem er með málið til meðferðar, kom þvínæst í pontu: „Við erum hér komin í leiðinda flækjumál,“ sagði hún. Bryndís sagði að það væri uppi ruglingur um tvö aðskilin mál, hvaða hug fólk beri til þess að breyta því fyrirkomulagi að Alþingi geti veitt ríkisborgararétt og svo hvernig hægt sé að leysa stöðuna nú. Þá benti hún á að í desember hefði nefndin bókað frest fyrir Útlendingastofnun út janúarmánuð til að afhenda þinginu umsóknir sem höfðu borist fyrir 1. október 2021, og umsagnir um þær. Þá sagði hún að undirnefnd allsherjar- og menntamálanefndar hefði fundað um málið í morgun og næsti fundur verði sem allra fyrst. „Ég vænti þess að þetta mál verði leyst alveg á næstunni,“ sagði hún.

Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, sagði þá að hún væri ósammála Bryndísi, og að málið væri hreint ekki flókið, heldur væri hér verið að hefta störf Alþingis. Þá óskaði hún nefndinni velfarnaðar í að leysa málið.

Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins og fyrsti varamaður allsherjar- og menntamálanefndar, gerði grein Jóns Gunnarssonar innanríkisráðherra – Ríkisborgararéttur og Alþingi – einnig að umtalsefni. „Pínlegri grein hef ég ekki lesið á minni ævi frá ráðherra lýðveldisins. Ég verð bara að segja eins og er. Ég skal segja ykkur af hverju. Dómsmálaráðherra skilur ekki muninn á stjórnsýslumáli og máli fyrir Alþingi Íslendinga. Hann skilur ekki þennan mun. Hann skilur rekki muninn á undirbúningi máls vegna stjórnvaldsákvörðunar Útlendingastofnunar og undirbúning máls varðandi lagasetningu á Alþingi Íslendinga,“ sagði hann og benti á að Útlendingastofnun bæri lagaskylda til að undirbúa hið síðarnefnda með því að veita umsögn með umsóknunum. „Þessu er hæstvirtur innanríkisráðherra að grauta saman í grein á Vísir.is sem ég hvet alla til að lesa,“ sagði hann.

Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna, tók undir með þeim sem gagnrýndu framferði Útlendingastofnunar og innanríkisráðherra. Þá sagði hún óboðslegt gagnvart þeim sem sannarlega hafa sótt um ríkisborgararétt til Útlendingastofnunar samkvæmt gildandi lögum og greitt fyrir vinnslu á umsókn sinni ef það ætti allt í einu að breyta um kúrsí miðri á. „Við verðum að afgreiða þessar umsóknir. Við erum að kalla eftir gögnum sem lögum samkvæmt ber að veita okkur. Það er ekkert flækjustig. Það þarf að klára þetta mál. Á meðan bíður fólk í óvissu,“ sagði hún.

Gísli Hrafn Ólafsson, þingmaður Pírata, vakti athygli á því að þingmenn þyrftu dag eftir dag að vekja athygli á lögbrotum án þess að nokkuð sé að gert. „Það er algjört virðingarleysi við Alþingi og annað hvort þarf hæstvirtur ráðherra að fylgja lögum eða viðkomandi hæstvirtur ráðherra þarf að láta af störfum.“

Sjá einnig:

Allt að sjóða upp úr á Alþingi – „Ég hélt að þetta væru falsfréttir. Ég trúði þessu ekki“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“
Fréttir
Í gær

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir
Fréttir
Í gær

Skipulagsbreytingar formanns Miðflokksins og gervigreindar – „Alveg hissa að formaðurinn hafi ekki búið til fleiri bílastæði“

Skipulagsbreytingar formanns Miðflokksins og gervigreindar – „Alveg hissa að formaðurinn hafi ekki búið til fleiri bílastæði“
Fréttir
Í gær

Kosmos er nýtt lággjaldafyrirtæki á fjarskiptamarkaði

Kosmos er nýtt lággjaldafyrirtæki á fjarskiptamarkaði