fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Banaslys við Framhaldsskólann á Laugum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 2. febrúar 2022 17:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

19 ára gamall maður lést í banaslysi við Framhaldsskólann á Laugum í dag. Varð hann fyrir bíl. Var hann meðvitundarlaus er viðbragðsaðilar komu á vettvang og endurlífgunartilraunir báru ekki árangur.

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra segir:

„Kl. 14:03 í dag barst lögreglunni á Norðurlandi eystra tilkynning um að slys hefði orðið við Framhaldsskólann á Laugum. Þar hefði 19 ára karlmaður orðið fyrir bíl. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var maðurinn meðvitundarlaus og báru endurlífgunartilraunir ekki árangur. Nokkrir nemendur úr skólanum urðu vitni að slysinu og hefur áfallahjálparteymi Rauða krossins verið virkjað til að hlúa að þeim. Rannsókn á tildrögum slyssins er á algjöru frumstigi og vettvangsrannsókn enn yfirstandandi þegar þetta er skráð. Lögreglan getur því ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo komnu.“

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Eyþór vill hleypa sjálfkeyrandi bílum inn á akreinar Borgarlínu

Eyþór vill hleypa sjálfkeyrandi bílum inn á akreinar Borgarlínu
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sorpþjónusta hefur hækkað um 104% að raun­virði frá 2008 – Reykvíkingar borga mest og eru óánægðastir með sorphirðu

Sorpþjónusta hefur hækkað um 104% að raun­virði frá 2008 – Reykvíkingar borga mest og eru óánægðastir með sorphirðu
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Þröstur er með nýrnabilun á lokastigi – Óskar eftir aðstoð til að halda reisn og sjálfstæði „síðustu ár ævi minnar“

Þröstur er með nýrnabilun á lokastigi – Óskar eftir aðstoð til að halda reisn og sjálfstæði „síðustu ár ævi minnar“