
Viðkvæmt kynferðisbrotamál verður tekið fyrir í Héraðsdómi Vestfjarða þann 28. febrúar næstkomandi. Málið er það viðkvæmt að þinghald verður lokað og DV hefur ekki fengið afhenta ákæru í málinu.
En samkvæmt heimildum DV snýst málið um brot manns sem er undir tvítugu sem mun hafa keypt í stórum stíl nektarmyndir af stúlkum sem eru nokkrum árum yngri en hann. DV er ekki ljóst nákvæmlega hvað hin meintu brot eru mörg en stúlkurnar sem í hlut eiga munu nálgast einn tug. Sú yngsta er 13 ára en þær eru flestar 15 ára. Pilturinn er nokkuð eldri, en þó undir tvítugu eins og fyrr segir. Samkvæmt upplýsingum DV var pilturinn nýorðinn 18 ára þegar hann framdi brotin.
Ákærandi í málinu er Lögreglustjórinn á Vestfjörðum og sendi DV fyrirspurn um málið til lögreglustjórans, Karls Inga Vilbergssonar.
Hann segir málið vissulega viðkæmt og þinghald verði fyrir luktum dyrum. „Ákærða, sem er ungur að árum, er gefið að sök brot gegn 1. mgr. 210. gr. a. almennra hegningarlaga með því að hafa í febrúar 2021 aflað sér og/eða reynt að afla sér kynferðislegra mynda af ungum stúlkum gegn greiðslu. Ég held að ég geti ekki upplýst neitt frekar um málið,“ segir Karl.
Aðalmeðferð í málinu verður að líkindum í marsmánuði.