fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Þórarinn segir öfgahópa kæfa niður umræðuna – „Öfgahópar eru mein“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 2. febrúar 2022 14:29

Þórarinn Hjartarson - Mynd: Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórarinn Hjartarson, þáttastjórnandi hlaðvarpsins Ein Pæling, segir öfgahópa ekki vera góða þrátt fyrir að í umræðum heyrist að þeir ýti samfélaginu í rétta átt.

Þetta kemur fram í pistli sem Þórarinn skrifar en pistillinn birtist á Vísi. „Alla jafna tengjum við öfgahópa við slæma hluti. Öfgahópar telja sig hafa fundið hinn óvéfengjanlega sannleik. Efasemdir eru álitnar sem bakslag, óþæginlegar uppákomur og þversagnir eru kveðnar í kútinn,“ segir Þórarinn í upphafi pistilsins.

„Í bók sinni The Captive Mind ræðir Czesław Miłosz um slíkar aðstæður. Miłosz notar orðið Ketman til þess að lýsa þankagangi þeirra sem lifa við stjórn öfgaafla. Hugtakið er keimlíkt tvíhugsun (e. Double-think) Orwells en ekki að öllu leyti. Ketman lýsir Miłosz sem nýjum trúarbrögðum en samtímis bjargráði sem iðkað er til þess eins að halda lífi. Ógnarstjórn öfgaaflanna þarf ekki að halda uppi með stanslausu eftirliti með þegnum ríkisins heldur sjá þegnarnir sjálfir að stóru leyti um eftirlitið.“

Þórarinn segir Miloscz tala um að öfgafólk á tímum Stalíns hafi ekki nauðsynlega verið vont fólk heldur réttlætti það óafsakanlega hegðun með vísan til þess fyrirheitnalands sem átti að rísa í kjölfarið. „Það fyrirheitnaland tókst aldrei að mynda,“ segir Þórarinn.

„Almenn umræða og efasemdir voru kveðnar niður með vísan til þess að þeir sem setja spurningamerki við áætlanir og aðgerðir öfgafólksins séu mótfallnir markmiðinu. Tvíræðni flókinna málefna er fyrir borð borin og þess krafist að litið sé á öfgarnar sem réttu leiðina fram á við. Sá sem efast um þá sýn er umsvifalaust tekinn úr umferð. Fræðimenn innan akademískra stofnanna höfðu áhyggjur af eigin stöðu og blésu í lúður öfgafólksins til þess að halda í störf sín. Í besta falli þögðu þeir.“

„Hetjur og fórnarlömb“

Þórarinn segir þá að öfgahópar séu ekki alltaf trúarlegs eðlis en þrátt fyrir það líkist forystufólk þeirra trúarleiðtogum. „Það er í senn hetjur og fórnarlömb. Til að sannfæra fólk um réttmæti afstöðu sinnar nota leiðtogarnir torskiljanleg hugtök sem svör við hverskyns spurningum,“ segir hann.

„Torskiljanleg hugtök koma öfgahópum vel á marga vegu. Þeir lenda oft í vandræðum með framboð af óvinum en ráða fram úr því með því að sannfæra fólk um að þeir séu illskan upp máluð. Hverskyns mistök sem andstæðingurinn hefur gert eru notuð sem vitnisburður og staðfesting á þeirri sýn. Óvinurinn verðskuldar ekki að svara fyrir sig því samkvæmt öfgahópnum hefur hann ekkert haldbært að segja. Hann er og verður illur samkvæmt skilgreiningu.“

Segir rangt að öfgahópar ýti samfélaginu í rétta átt

Að lokum segir Þórarinn einfaldlega að öfgahópar séu mein. „Öfgahópar eru mein. Í umræðum má heyra að öfgahópar ýti samfélaginu í rétta átt. Það er ekki rétt,“ segir hann.

Þá segir hann að þrátt fyrir að staða ýmissa hópa og samfélagið í heild sinni hafi tekið stór skref fram á við á mörgum sviðum sé ekki hægt að eigna öfgafólki þann heiður. Hann segir öfgafólk kæfa niður umræðu og halda samborgurum sínum í siðferðislegri sjálfheldu með sinni ógnarstjórn.

„Baráttufólk síðustu áratuga fyrir hvers kyns réttindum nýtti sér umræðuvettvanginn til þess að benda á tvískinnung og óréttlæti. Slíkt skortir í dag.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“
Fréttir
Í gær

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir
Fréttir
Í gær

Skipulagsbreytingar formanns Miðflokksins og gervigreindar – „Alveg hissa að formaðurinn hafi ekki búið til fleiri bílastæði“

Skipulagsbreytingar formanns Miðflokksins og gervigreindar – „Alveg hissa að formaðurinn hafi ekki búið til fleiri bílastæði“
Fréttir
Í gær

Kosmos er nýtt lággjaldafyrirtæki á fjarskiptamarkaði

Kosmos er nýtt lággjaldafyrirtæki á fjarskiptamarkaði