fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Þverneita því að mistök hafi átt sér stað við fasteignamat

Erla Dóra Magnúsdóttir
Miðvikudaginn 2. febrúar 2022 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þjóðskrá Íslands neitar því að mistök hafi átt sér stað hjá stofnuninni við útreikning fasteignamats árið 2021, en því hefur verið haldið fram að mistök á landsbyggðinni hafi valdið því að íbúðir fjölbýlishúsa sem eiga stæði í bílageymslu hafi verið metin of hátt sem hafi svo verið leiðrétt með fasteignamati þeirra eigna sem lækkar nú á milli ára.

Sjá einnig: Stór mistök sögð hafa verið uppgötvuð hjá Þjóðskrá í janúar en ekki leiðrétt – „Hér er verið, gegn betri vitund að brjóta á réttindum fasteignaeigenda“

Nú liggur fyrir fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þingmanni Flokks fólksins, á Alþingi þar sem Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, er krafinn svara um mistökin, en í fyrirspurn er gengið út frá mistökunum sem vísum hlut.

Sjá einnig: Vill að Sigurður svari fyrir „íþyngjandi mistök“ Þjóðskrár við fasteignamat – „Telur ráðherra það eðlilegt?“

Ekki um mistök að ræða

Í svörum sem DV barst frá Þjóðskrá í dag þar sem óskað var eftir afgerandi svari um hvort mistök hafi átt sér stað eða ekki segir:

„Eins og lesa má í fyrri svörum Þjóðskrár eru umræddar breytingar vegna árlegrar endurskoðunar á líkönum og því ekki um mistök að ræða. Eins og fyrr segir þá áttu sér stað breytingar á 10 af 17 þáttum sem líkan fjölbýlis á landsbyggðinni tekur tillit til við endurmat fasteignamats 2022. Allar breytingar eru gerðar til að líkön endurspegli sem best þróun kaupverðs á milli ára. Árleg endurskoðun á matslíkönum og þar af leiðandi hlutfallslegu virði mismunandi eiginleika fasteigna er nauðsynleg til að koma í veg fyrir að matsaðferðir úreldist og misræmi byggist inn í líkönin yfir lengri tíma.

Við viljum jafnframt undirstrika að bílastæði eru hluti af heild fasteignar og ekki metin sér, heldur veltur fasteignamat einnig á fleiri þáttum eins og staðsetningu, stærð íbúðar o.s.frv.“

Enginn annar stuðull tók viðlíka breytingum

Svör Þjóðskrár eru þvert á heimildir DV sem herma að um mistök hafi verið að ræða og að af þeim hafi verið vitað síðan snemma árs 2021.

Við þetta svar má þó bæta að í fyrirspurn DV voru gefin dæmi um eignir í sama hverfi, sömu stærðar, í sama fjölbýlishúsi sem ýmist lækkuðu eða hækkuðu í fasteignamati milli ára. Það sem greindi á milli þeirra var að þær sem lækkuðu eiga stæði í bílageymslu, en þær sem hækkuðu eiga ekki slíkt.

Dæmi um slíkt er fjölbýlishús á Akureyri. Ef við skoðum tvær íbúðir þar, önnur er 36,4 fermetrar og henni fylgir stæði í bílageymslu og hin er 36,5 fermetrar og henni fylgir ekki stæði. Fermetrinn í þeirri sem stæðið fylgir var á um 770 þúsund árið 2021 en lækkar í 659 þúsund árið 2022. Fermetrinn hjá þeirri sem ekki fylgdi stæði í bílageymslu var á 524 þúsund árið 2021 en hækkar í 541 þúsund fyrir árið 2022.

Ekki hefur fengist skýring frá Þjóðskrá um hvers vegna umræddar íbúðir með stæði í bílageymslu lækka í mati. Eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan var sá stuðull sem notaður er fyrir bílastæði töluvert lækkaður milli ára fyrir fjölbýlishús á landsbyggðinni, enginn annar stuðull tók viðlíka breytingum. Þetta er þó ekki skýrt sérstaklega í skýrslum Þjóðskrár sem gefnar voru út vegna fasteignamats 2021 annars vegar og 2022 hins vegar.

Fyrir árið 2021 var þátturinn „fjöldi bílastæða“ settur í veldið 0,078 á höfuðborgarsvæðinu en 0.732 fyrir landsbyggðina, eða tæplega tíu sinnum hærri tala en á höfuðborgarsvæðinu.

Fyrir árið 2022 er þessi sami þáttur í veldinu 0,25 fyrir höfuðborgarsvæðið og 0.35 fyrir landsbyggðina.

 

Þættir mats þegar fasteignamat var reiknað fyrir árið 2022 (t.v.) og 2021 (t.h.) Heimild/Úr skýrslum Þjóðskrár um útreikning fasteignamats 2022 og 2021
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“
Fréttir
Í gær

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir

Lögreglan birtir gervigreindarmynd til að auglýsa skotvopnaeftirlit – Loka fyrir athugasemdir
Fréttir
Í gær

Skipulagsbreytingar formanns Miðflokksins og gervigreindar – „Alveg hissa að formaðurinn hafi ekki búið til fleiri bílastæði“

Skipulagsbreytingar formanns Miðflokksins og gervigreindar – „Alveg hissa að formaðurinn hafi ekki búið til fleiri bílastæði“
Fréttir
Í gær

Kosmos er nýtt lággjaldafyrirtæki á fjarskiptamarkaði

Kosmos er nýtt lággjaldafyrirtæki á fjarskiptamarkaði