fbpx
Þriðjudagur 03.febrúar 2026
Fréttir

Flokka jólaruslið fyrir fólk

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 24. desember 2021 09:43

Jóhanna Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Orkunnar og Gunnar Friðriksson, viðskiptastjóri hjá Terra hjá endurvinnslugám við Orkuna á Gylfaflöt í Grafarvogi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pappi, plast og jólapappír eru stór hluti af ruslinu sem fellur til um jólin og fyllast heimilistunnur hratt á þessum árstíma. Í tilkynningu frá Orkunni kemur fram að  til 29.desember verður hægt að skila pappa, plastumbúðum og jólapappír til endurvinnslu á fjórum stöðvum fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu.

„Við þekkjum öll hvernig stofan okkar lítur út eftir aðfangadagskvöld. Við viljum einfalda líf fólks og trúum á að þetta séu þægindi framtíðarinnar. Með þessum möguleika getur fólk hent pappa, plasti og jólapappír með góðri samvisku hvenær sem hentar, jafnvel á náttfötunum á jóladagsmorgun. Terra sér svo um að flokka og endurvinna það sem safnast.“ segir Jóhanna Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Orkunnar.

Um tilraunaverkefni er að ræða og möguleiki að fjölga staðsetningum fyrir næstu jól ef vel gengur í ár. „Við prófuðum þetta í sumar með garðaúrgang við góðar undirtektir og finnum fyrir mikilli ánægju meðal viðskiptavina okkar með þetta framtak. Garðaúrgangurinn er síðan jarðgerður og munum við bjóða moltu til viðskiptavina á næsta ári.“

Gámarnir eru staðsettir við stöðvar Orkunnar á Suðurströnd, Seltjarnarnesi, við Kleppsveg og á Gylfaflöt í Reykjavík og á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði og eru aðgengilegir allan sólarhringinn. Í gámana má fara pappi, plastumbúðir og jólapappír. „Við viljum samt vekja athygli á því að oft er hægt að nýta jólapappír, pakkabönd og slaufur aftur næstu jól og er það auðvitað besta endurvinnslan,“ segir Jóhanna að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Krefjast lögreglurannsóknar á fyrrum ráðherra sem sendi ríkisleyndarmál á Epstein

Krefjast lögreglurannsóknar á fyrrum ráðherra sem sendi ríkisleyndarmál á Epstein
Fréttir
Í gær

Einn þekktasti raðmorðingi Bretlands dreginn fyrir dóm að nýju – Gekkst í fyrsta skipti við myrkraverkum sínum

Einn þekktasti raðmorðingi Bretlands dreginn fyrir dóm að nýju – Gekkst í fyrsta skipti við myrkraverkum sínum
Fréttir
Í gær

Tveir handteknir í tengslum við andlát á sjúkrahúsi í Vestmannaeyjum

Tveir handteknir í tengslum við andlát á sjúkrahúsi í Vestmannaeyjum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Daníel Örn er á batavegi eftir fólskulega og tilefnislausa líkamsárás – „Einbeittur brotavilji og ekkert annað“

Daníel Örn er á batavegi eftir fólskulega og tilefnislausa líkamsárás – „Einbeittur brotavilji og ekkert annað“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta eru dýrustu póstnúmerin eftir einbýli og fjölbýli

Þetta eru dýrustu póstnúmerin eftir einbýli og fjölbýli