fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

Barðist fyrir því að COVID-19-smitaður eiginmaður hennar fengi Ivermectin – Nú er hann látinn

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 17. desember 2021 22:30

Keith og Darla Smith. Skjáskot/ABC27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á sunnudaginn lést Keith Smith, 52 ára, á sjúkrahúsi í Pennsylvania í Bandaríkjunum. Hann hafði legið á sjúkrahúsi í tæpar þrjár vikur og barist við COVID-19. Eiginkona hans, Darla Smith, hafði barist fyrir því að hann fengi lyfið Ivermectin og hafði betur fyrir rétti. Keith hafði nýlega fengið skammt númer tvö af lyfinu þegar hann lést.

Samkvæmt frétt Independent þá greindist Keith með kórónuveiruna þann 10. nóvember. Hann var lagður inn á gjörgæsludeild og settur í dá þann 21. nóvember. Þegar heilsu hans hrakaði enn frekar fór Darla með mál hans fyrir dóm til að fá dómara til að fyrirskipa læknum að gefa Keith Ivermectin.

Ivermectin er lyf sem vinnur gegn sníkjudýrum og er ætlað til notkunar á dýr. Andstæðingar bólusetninga hafa lengi haldið því fram að lyfið sé kraftaverkalyf gegn COVID-19 og sögum þar um hefur mikið verið dreift í hópum íhaldsmanna á Facebook og öðrum samfélagsmiðlum.

En bandaríska lyfjastofnunin hefur ekki samþykkt lyfið til notkunar á fólk því tilraunir með það hafa ekki sýnt neinn ávinning af notkun þess. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO segir að engar sannanir liggi fyrir um virkni lyfsins gegn COVID-19.

Í úrskurði Clyde Vedder, dómara, frá 3. desember kemur fram að hann geti ekki fyrirskipað starfsfólki sjúkrahússins að gefa Keith lyfið en hann heimilaði Darla að fá utanaðkomandi heilbrigðisstarfsmann til að gera það.

En lyfið hafði engin áhrif á Keith og hann lést á sunnudaginn, nokkrum dögum eftir að hann fékk skammt númer tvö af lyfinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

DNA úr tveimur mönnum var eins – Hvor þeirra var morðinginn?

DNA úr tveimur mönnum var eins – Hvor þeirra var morðinginn?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Óvænt uppgötvun í svefnherberginu – Þess vegna missa konur kannski kynlífsáhugann á undan körlum

Óvænt uppgötvun í svefnherberginu – Þess vegna missa konur kannski kynlífsáhugann á undan körlum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessar plöntur elska kaffikorg – Vaxa hraðar, verða sterkari og fallegri

Þessar plöntur elska kaffikorg – Vaxa hraðar, verða sterkari og fallegri
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar