fbpx
Þriðjudagur 03.júní 2025
Fréttir

Nýjasti þáttur Kveiks vekur reiði jafnvel þó enn eigi eftir að sýna hann – „Ótrúleg fréttamennska eða hitt þó heldur“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 5. október 2021 17:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýjasta umfjöllun fréttarskýringarþáttarins Kveiks hefur vakið hörð viðbrögð og það án þess að þátturinn hafi einu sinni verið sýndur, en hann er á dagskrá RÚV rétt eftir klukkan átta í kvöld.

Í þættinum verður annars vegar fjallað um einstakinga sem ekki hafa látið bólusetja sig og hins vegar, og það er þessi umfjöllun sem vakið hefur reiði, er fjallað um offitu barna á landsbyggðinni á Íslandi.

Samkvæmt kynningarumfjöllun Kveiks um þátt kvöldsins hafa niðurstöður skimana í grunnskólum barna hér á landi bent til þess að sífellt fleiri börn glími við offitu. Á höfuðborgarsvæðinu sé tæplega fjórðungur yfir kjörþyngd en hlutfallið sé enn hærra utan höfuðborgarsvæðisins. Í þættinum er rætt við Tryggva Helgason, barnalækni og sérfræðing í offitu barna, og Ásu Sjöfn Lórensdóttur, fagstjóra hjá heilsuvernd skólabarna.

Eins er farið hvernig meirihluti átta ára aðgerðaráætlun stjórnvalda í þessum málaflokk hafi ekki komist til framkvæmda hvað börn varðar og að landlæknir hafi sent heilbrigðisráðherra minnisblað í janúar til að vekja athygli á umfangi vandans.

Af viðbrögðum netverja má merkja að þeim þyki umfjöllun Kveiks til þess fallin að ala á fitufordómum sem og fordómum gegn börnum á landsbyggðinni.

Enn einn æsifréttaþátturinn

Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður Samtaka um líkamsvirðingu, segir að Kveik hefði veirð nær að fjalla um fitufordóma innan heilbrigðiskerfisins og hvernig þeir ógni heilsu fólks og velferð.

Eins og segir að ofan verður í þættinum rætt við Tryggva Helgason, barnalækni, í þættinum. Tryggvi hefur barist fyrir því að viðurkennt verði að offita sé orðið mikið vandamál meðal barna á Íslandi. Hann ræddi við DV um málið fyrr ár árinu þar sem hann greindi frá því að börn á Íslandi í dag glími sum við kæfisvefn, ógreinda sykursýki og jafnvel fitulifur.  Hlutfall landsmanna með offitu sé hæsthér á landi meðal OECD-ríkja og í Heilsuskóla Barnaspítala hringsins séu biðlistar orðnir langir – en í heilsuskólanum er fjölskyldum kennt að takast á við þyngdarstjórnun.

Sjá umfjöllun DV frá marsmánuði:

Yfir þrjú þúsund börn með offitu á Íslandi – Dæmi eru um börn með fitulifur, kæfisvefn og ógreinda sykursýki

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Aftakaveður í dag: „Nú í morgunsárið er víða snjókoma eða slydda“

Aftakaveður í dag: „Nú í morgunsárið er víða snjókoma eða slydda“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta óttast Pútín mest – Gæti „hangið í ljósastaur“ innan hálfs árs

Þetta óttast Pútín mest – Gæti „hangið í ljósastaur“ innan hálfs árs
Fréttir
Í gær

Neydd til að mæta ofbeldismanni sínum í dómsal – „Þegar þú drepst þá mun ég brosa“

Neydd til að mæta ofbeldismanni sínum í dómsal – „Þegar þú drepst þá mun ég brosa“
Fréttir
Í gær

Ásgeir missti 2 syni með 12 klukkustunda millibili – „Ef eitthvað á að hugga mann þá á það að vera það að þetta leiði til einhvers og bjargi öðrum lífum“

Ásgeir missti 2 syni með 12 klukkustunda millibili – „Ef eitthvað á að hugga mann þá á það að vera það að þetta leiði til einhvers og bjargi öðrum lífum“
Fréttir
Í gær

FM95BLÖ hneykslið: Ísleifur urðar yfir tónleikahaldarana – „Þeir eru heppnir að enginn hafi dáið“

FM95BLÖ hneykslið: Ísleifur urðar yfir tónleikahaldarana – „Þeir eru heppnir að enginn hafi dáið“
Fréttir
Í gær

Björgólfur Thor svarar fyrir meintar njósnir – „Það kom ekkert út úr þessu verkefni“

Björgólfur Thor svarar fyrir meintar njósnir – „Það kom ekkert út úr þessu verkefni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

United sagt horfa í ódýrari kosti í fremstu víglínu

United sagt horfa í ódýrari kosti í fremstu víglínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ungur strákur sveiflandi hníf í Hafnarfirði í kringum enn yngri börn – „Það voru margir fullorðnir í kring en enginn sagði neitt“

Ungur strákur sveiflandi hníf í Hafnarfirði í kringum enn yngri börn – „Það voru margir fullorðnir í kring en enginn sagði neitt“