fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Tæplega þúsund í sóttkví á Akureyri – „Auðvitað leggst þetta ekki vel í fólk“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 5. október 2021 11:36

Frá Akureyri

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tæplega þúsund manns eru nú í sóttkví á Akureyri en 78 hafa greinst þar undanfarna daga með COVID-19. Skólastarf hefur raskast mikið og íþróttamóti sem halda átti um helgina hefur nú verið frestað. Alls eru 1969 einstaklingar í sóttkví á landinu í dag.

Hermann Karlsson, aðalvarðstjóri aðgerðarstjórn hjá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra segir stöðuna ekki góða í samtali við Vísi. „Staðan hjá okkur er ekki góð. Við erum með rúmlega níutíu smit í gangi í augnablikinu í umdæminu. Þar af eru tæp áttatíu hérna á Akureyri og þúsund manns tæplega í sóttkví. Á Húsavík erum við líka með fimm smit en þar eru um tvö hundruð aðilar rúmlega í sóttkví.“

Samkvæmt Hermanni eru flestir hinna smituðu á grunnskólaaldri.

„Hópurinn sem er fjölmennastur í dag er börn og unglingar og þá sérstaklega þau sem eru óbólusett á aldrinum 8-12 ára. Þannig að við höfum verið að mælast til þess að þeir sem hafi með íþróttir, félagsstarfsemi, tómstundir já, fyrir börn og unglinga hugi að því að setja þær samverustundir til hliðar núna fram á næsta mánudag til að geta bara kveðið þetta niður sem við vonumst til að sé hægt.“

Hermann segir smituðu börnin ekki vera mikið veik.

„Auðvitað leggst þetta ekki vel í fólk. Menn voru alltaf farnir að hlakka til þess að við værum fanrir að sjá til lands í þessu en ég held nú svona samt að menn taki þessu almennt þannig að þetta sé svona verkefni sem þurfi að yfirstíga núna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Egill varar valkyrjurnar við – „Held að ríkisstjórnin megi vara sig“

Egill varar valkyrjurnar við – „Held að ríkisstjórnin megi vara sig“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Fréttir
Í gær

Bakkaði bílnum á konu sem fótbrotnaði á báðum

Bakkaði bílnum á konu sem fótbrotnaði á báðum
Fréttir
Í gær

Segir erfitt að átta sig á átökunum við Íran – „Fyrir Bandaríkin er þetta slæmt mál“

Segir erfitt að átta sig á átökunum við Íran – „Fyrir Bandaríkin er þetta slæmt mál“