Örtröð myndaðist á bensínstöðvum og veitingastöðum víða um höfuðborgarsvæðið í gærkvöldi er þúsundir Íslendinga nýttu sér ferðagjöf sína á síðustu stundu. Ferðagjöfin rann út á miðnætti í gær.
Þegar blaðamaður DV bar að garði að N1 stöðinni við Hringbraut um tíuleytið í gærkvöldi var honum tjáð af afgreiðslumanni þar að inneignarkortin á stöðinni væru búin, og að bara á einum kassa hefði salan á bensín og dísel olíu verið komin upp í tvær og hálfa milljón.
Sömu sögu var að segja af veitingastöðum á borð við KFC, Serrano og Hlöllabátum, sem allir þáðu ferðagjöf sem greiðslu fyrir veitingar sínar.
Samkvæmt mælaborði ferðaþjónustunnar, áttu 32,384 Íslendingar ónotaðar ferðagjafir þann 29. september, eða fyrir tveimur dögum. Samtals var ónotuð upphæð um 183 milljónir króna. Samtals fengu um 280 þúsund Íslendingar ferðagjöfina, en í fyrradag höfðu rétt tæplega 207 þúsund einstaklingar sótt gjöfina og 174 þúsund nýtt sér hana.
Samkvæmt áðurnefndu mælaborði höfðu Íslendingar í fyrradag eytt 846 milljónum íslenskra króna í verslun og þjónustu með ferðagjöf. Rúmlega helmingur þeirrar upphæðar fór til fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu, eða landsdekkandi fyrirtækja.
Um 401 milljón hafði þá farið til veitingastaða, 146 milljónir í afþreyingu, 128 milljónir í samgöngur og annað eins í gistingu.
Að sjálfsögðu stóðu netverjar háðsvaktina í gærkvöldi og gerðu stólpagrín að löndum sínum og ferðagjafakerfinu.
Ekki seinna vænna að sækja ferðagjöfina. Hvort á ég að kaupa bensín eða mat fyrir hana?
— Sólveig (@solveighauks) September 30, 2021
Miðað við röðina á KFC hef ég engar áhyggjur af því að ferðagjöfin klárist ekki 🇮🇸🍗🍟🇮🇸
— Gísli Már (@gislimar) September 30, 2021
Ég gaf fjarhirslum ríkisins mína síðustu ferdagjöf. Ég er diggur stuðningsmaður fjármálaráðherra Íslands. Bjarna Benediktssonar #Sjálfstæðisflokkurinn
— Sergey R. (@IAmSergeyR) September 30, 2021
Ég var með tvær ferðagjafir til að moða úr. Kringlukráin fyrir 5k og dísilolía á bílinn á leiðinni heim fyrir 5k. Takk fyrir mig, ríkissjóður.
— Ingvar S. Birgisson (@ingvarsmari) September 30, 2021
10 þús kr í ferðagjöf sem við ásamt 70þús öðrum Íslendingum höfum ekki nýtt og rennur út á miðnætti. Er það bara nokkrar Dominos?
— Kristrún Frostadóttir (@KristrunFrosta) September 30, 2021
einhverjir dópsalar á höfuðborgarsvæðinu sem að taka á móti ferðagjöf? þarf svör NÚNA
— ari (@ari_carl_) September 29, 2021
Þú matt ranta um þetta við mig, því ég skil 😌
AFHVERJU ÞURFTU ALLIR AÐ NOTA ÞESSA FOKKING FERÐAGJÖF Í DAG??? Á SEINASTA DEGINUM.
AAAAAAAAAAAAAASorry😌😊
— Аtli (@atlithorjons) September 30, 2021
Takk fyrir bensínið#ferðagjöf
— Sæmi (@SaemiVald) September 30, 2021