Kona sem býr ofarlega í Hraunbænum varar fólk í nágrenninu við dularfullu framferði í götunni eftir mjög óþægilega upplifun í dag. Hún horfði upp á ókunnugan mann bera út húsgögn í hennar eigu og setja inn í bíl. Húsgögnin voru geymd undir stiganum í fjölbýlishúsi í götunni en það hafði þurft draga þau fram vegna viðgerða í kjölfar lekaskemmda.
Konan sem vill ekki láta nafn síns getið segir í samtali við DV: „Ég vil að fólk sé vakandi. Hann baðst afsökunar og skilaði því sem hann hafði tekið. En ég fékk ekkert upp úr honum um hvers vegna hann vissi það að þetta dót væri á ganginum. Það er virkilega óþægilegt. Hvernig veit hann þetta? Hann hélt því líka stöðugt fram að það hefði verið opið inn sem var ekki rétt. Ég var nýfarin út og er að ganga burt og þá sé ég að hann er búinn að leggja, þarna þessi maður. Ég er á bílastæðinu og sé þaðan að hann fer út með tvö borð sem voru þarna, annað var komið út í bíl og hann var með eitt í fanginu. Svo ég stoppaði hann og sagði: Fyrirgefðu, en hvað ert þú að gera þarna? Þá segir hann bara: Þetta er gefins!“
Konan segir að maðurinn hafi ekki verið íslenskur en hafa talað einhverja íslensku. Gerði hún sig skiljanlega við hann bæði á íslensku og ensku.
„Annaðhvort hleypti einhver honum inn eða hann var með lykla,“ segir konan og þykir atvikið hið undarlegasta og hún telur það vera til vitnis um að menn kunni að vera að njósna um húsnæði í hverfinu. Töluvert hefur verið af iðnaðarmönnum í kringum húsið undanfarið vegna viðgerða. Sem fyrr segir voru munir konunnar frammi á stigaganginum vegna viðgerða á húsnæði hennar en hún þurfti að tæma geymsluna og geyma húsgögn undir stiganum.
Konan segist hafa heyrt um innbrotahrinu í götunni undanfarið, bæði í bíla og hús. Hún tilkynnti atvikið ekki til lögreglu vegna, að hennar sögn, slælegra viðbragða lögreglu við innbrotatilkynningum. „Ég hef áður búið í blokk þar sem voru skýr merki um innbrot og það var búið að rústa og ýmislegt búið að gera og lögreglan gerði ekki neitt. Þeir sögðu mér bara að þetta væri ekki CSI og eitthvað svona. Og þar sem maðurinn baðst afsökunar, þá gerði ég það ekki.“
Hún leggur meiri áherslu á aðgæslu íbúa. „Ég treysti öllum í blokkinni og við erum búin að tala saman. Að vera ekki að hleypa inn neinum sem segist vera að sækja eitthvað eða laga eitthvað. Og við þurfum að fylgjast með vel. Mikilvægt er að fólk tali saman og vari aðra við ef tilefni er til.“