fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Helgi Áss segir RÚV ekki treystandi og að Guðni hefði mátt vita það – „Öfgahreyfingar sem svífast einskis“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 7. september 2021 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Áss Grétarsson, lögfræðingur, er andstæðingur svokallaðrar útilokunarmenningar og hefur tjáð sig nokkuð um slík málefni undanfarin misseri. Hann hefur nú tjáð sig um málefni KSÍ sem mikið hefur verið til umræðu undanfarnar vikur.

Helgi segir að fréttastofu RÚV sé ekki treystandi í sumum málaflokkum, þeirra á meðal málefnum sem varða femínisma. Telur hann að þetta hefði Guðni Bergsson, fyrrverandi formaður KSÍ átt að gera sér grein fyrir áður en hann mætti í viðtal við Kastljós og þrætti fyrir að sambandinu væri kunnugt um að meðlimir í landsliði karla hafi verið sakaðir um kynferðislegt ofbeldi. Telur hann að öfgahreyfingar séu farnar að hafa of mikil áhrif í samfélaginu og nú sé mál að linni.

Helgi ritar um þetta í grein hjá Vísi. 

Tangarhald öfgahópa

Hann segir atburðarás síðustu vikna varðandi KSÍ og ofbeldisumræðuna með ólíkindum. En Helgi telur ljóst að öfgahóparsamfélagsins séu komnir með tangarhald á starfsemi KSÍ, sem og í samfélaginu öllu. Segir hann ástandið orðið alvarlegt.

„Án dóms og laga en með rógburði að vopni, eru þessir hópar jafnvel farnir að ákveða fyrir hönd KSÍ hvaða leikmenn koma til greina fyrir landsliðsverkefni. Að útilokunarmenningin skuli vera komin á þetta stig hlýtur að vekja fólk með snefil af gagnrýnni hugsun til vitundar um hversu ástandið er orðið alvarlegt.“

Fréttastofu RÚV ekki treystandi

Helgi segir það hafa verið heimskulega ákvörðun hjá Guðna Bergssyni að fara í umtalað viðtal hans við Kastljós þar sem RÚV sé ekki treystandi í málaflokkum er varði kynferðisofbeldi.

„Það er mín skoðun að fréttastofu RÚV sé einfaldlega ekki treystandi í sumum málaflokkum, þ.m.t. málefnum sem varða hugðarefni „öfgafemínistahreyfingarinnar“.“

Helgi segir að Guðni hafi mátt vita að hvert orð hans gæti verið notað gegn honum.

„Öfgafólkinu varð að ósk sinni og næsta kvöld var tekið Kastljósviðtal við unga konu sem sagði farir sínar ekki sléttar í samskiptum við KSÍ og landsliðsmann í fótbolta. Múgsefjunarferlið, sem ætti að verða núna flestum bærilega þekkt, fór af stað. Í nokkra daga var konan unga hetja og KSÍ-fólkið skúrkar. Afsagnir og útilokanir fylgdu í kjölfarið, svo sem þegar hefur verið minnst á.“

Veilur í frásögn

Helgi segir að nú hafi komið í ljós að Þórhildur Gyða Arnardóttir, sem steig fram og greindi frá því að Guðni Bergsson vissi af því að Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsmaður, hefði beitt hana og aðra konu ofbeldi, hafi ekki sagt alveg alla söguna.

„Núna liggur hins vegar fyrir að veilur voru í frásögn konunnar ungu. Málavextir voru ekki þeir sem hún hélt fram. Andstætt því sem hún hélt fram gefur áverkavottorð til kynna að hún hafi enga sjáanlega áverka haft eftir samskiptin við landsliðsmanninn og enginn frá KSÍ kom að málinu.“

Lygin sigraði

Helgi segir að lygin hafi sigrað í þessu máli en um það hafi RÚV samt ekki fjallað.

„Eftir stendur að lygin sigraði í þessu máli. Fréttastofa RÚV hefur hins vegar, að því er virðist, ekki fjallað um lygi viðmælanda síns, konunnar ungu. Slíkt er í ósamræmi við vinnubrögð fréttastofunnar í öðrum málum, svo sem þegar þjófstolið efni er notað til að koma fréttum á framfæri. Sitthvað er Jón og séra Jón.“

Mál er að linni

Helgi segir fyllstu ástæðu til að berjast gegn öllu ofbeldi og að rétta hlut kvenna í ofbeldismálum. Slík barátta eigi að vera sameiginlegt átak í samfélaginu. Finnst honum sorglegt að sjá þau áhrif „öfgahreyfingar“ eru farnar að hafa á samfélagið. Helgi telur að hætta þurfi að útiloka fólk í samfélaginu.

„Baráttan fyrir bættri vernd kvenna gegn áreitni og ofbeldi ætti í fullkomnum heimi að vera sameiginlegt átak. Þess í stað eru komnar upp öfgahreyfingar sem svífast einskis til að ná einhvers konar höggi á það sem kallað er feðraveldið. Persónulega finnst mér sorglegt að sjá hversu mikil áhrif þessar hreyfingar hafa. Mál er að linni.

Vöknum áður en það verður of seint. Fyrsta skrefið er að láta ekki undan kröfum um útilokun. Almenningur, atvinnulífið og hið opinbera verða að æxla þar ábyrgð. Það erum nefnileg við, sem búum í þessu samfélagi, sem ljáum ofstækinu rödd með því að samþykkja kröfur um útilokun. Hættum að hlusta á ofstæki sem engu skilar. Vinnum frekar að því að bæta samfélag, sem í grunninn er nokkuð gott, með uppbyggilegum hætti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gunnar Smári hugleiðir meiðyrðamál

Gunnar Smári hugleiðir meiðyrðamál
Fréttir
Í gær

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum rannsakar mál þar sem faðir hennar er á meðal kærðra

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum rannsakar mál þar sem faðir hennar er á meðal kærðra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útgerðarmaður græddi 75 milljónir á nauðungarsöluhneykslinu í Reykjanesbæ – Krefur nú unga öryrkjann um milljón

Útgerðarmaður græddi 75 milljónir á nauðungarsöluhneykslinu í Reykjanesbæ – Krefur nú unga öryrkjann um milljón
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ríkið sem ætlar eingöngu að vera til á netinu: Þriðjungur íbúa búinn að sækja um flutning til Ástralíu

Ríkið sem ætlar eingöngu að vera til á netinu: Þriðjungur íbúa búinn að sækja um flutning til Ástralíu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“