fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Stígamót segja Sigurð G og Helga Magnús niðurlægja brotaþola ofbeldis – „Þessu verður að linna“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 7. september 2021 13:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stígamót hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna Facebook-færslu Sigurðar Guðna Guðjónssonar hæstaréttarlögmanns þar sem hann birti hluta úr lögregluskýrslu í máli Þórhildar Gyðu Arnardóttur og Jóhönnu Helgu Jensdóttur sem kærðu knattspyrnumanninn Kolbein Sigþórsson fyrir ofbeldi árið 2017.

Sigurður bar Stígamót meðal annars þungum sökum í færslunni og í viðtölum sem hann hefur veitt í kjölfar hennar. Sagði hann Stígamót hafa valdið mikilli óvissu hjá landsliði karla í knattspyrnu og sagði samtökin hafa gert atlögu að Kolbeini Sigþórssyni sem hafi leitt til útskúfunar hans úr landsliðinu.

Stígamót svara nú fyrir sig en yfirlýsing þeirra ber titilinn: „Réttarkerfið notað til að niðurlægja brotaþola ofbeldis“

Gögn notuð til að rægja og draga úr trúverðugleika

Stígamót segja færslu Sigurðar enn eitt dæmið um hvernig réttarvörslukerfið bregst þolendum á Íslandi.

„Í fyrradag birti hæstaréttarlögmaður og forseti dómstóla KSÍ lögregluskýrslur, með persónugreinanlegum gögnum úr skýrslutöku konu sem var að kæra ofbeldi. Enn og aftur bregst réttarvörslukerfið brotaþolum ofbeldis þar sem gögn úr kerfinu komast í hendur manna sem nýta þau til að rægja og draga úr trúverðugleika þolanda.“

Minna Stígamót á að nú séu mál átta kvenna til meðferðar hjá Mannréttindadómstól Evrópu vegna þess að þeirra mál voru felld niður í íslensku réttarkerfi án þess að fá viðundandi meðferð eða að nægt tillit væri tekið til sönnunargagna.

„Brotalamir réttarkerfisins eru mörgum kunnar en alltaf skulu finnast nýjar leiðir til að nýta það gegn þolendum ofbeldis. Stígamót hafa vakið athygli á niðurfellingarhlutfalli nauðgunarmála en yfir 70% þeirra eru felld niður og komast því aldrei í dómsal. Mál átta kvenna eru nú til meðferðar hjá Mannréttindadómstól Evrópu einmitt af því að málin þeirra voru felld niður í íslensku réttarkerfi án þess að fá viðunandi meðferð eða að tekið væri nægt tillit til sönnunargagna. Þau fáu mál sem komast frá saksóknaraembættum og fyrir dóm eru oft gríðarlengi í meðförum kerfisins sem skilar sér í milduðum dómi í Landsrétti fari svo að yfirhöfuð sé sakfellt í málinu. Konur sem kæra ofbeldi eiga alltaf yfir höfði sér ógnina um að verða kærðar fyrir rangar sakargiftir sé málið þeirra fellt niður og ef þær voga sér að segja upphátt hver beitti þær ofbeldi dettur kæra fyrir meiðyrði í hús.“

Alvarlegur viðhorfsvandi Helga Magnúsar

Nú hafi Sigurður, sem sé fagaðili innan kerfisins, birt lögregluskýrslur á Facebook úr máli sem hann sjálfur hafði enga aðkomu að. Þar að auki hafi Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari „lækað“ umrædda færslu.

„Nú birtir fagaðili sem starfar innan kerfisins sem lögmaður lögregluskýrslur á Facebook í máli sem hann hefur enga beina aðkomu að. Í ofanálag „lækar“ vararíkissaksóknari færsluna en hann gegnir embætti sem hefur úrslitavald um það hvort ofbeldismál fái áheyrn dómara eður ei.

Stundum er talað um að fólk innan kerfisins sé velviljað og allir séu að gera sitt besta – það sé bara flókið að ná fram sakfellingum og sanna brot. Þessi framganga vararíkissaksóknara sýnir á hinn bóginn alvarlegan viðhorfsvanda háttsetts embættismanns í kerfinu og gefur ekki von um að menning sem leyfir sér að gera lítið úr brotaþolum ofbeldis verði upprætt á næstunni – og það í kerfinu sem á einmitt að vernda þessa sömu brotaþola.“

Ekkert skrýtið að konur kæri ekki

Stígamót segja að það sé ekkert skrýtið við það að konur kæri ekki ofbeldi sem þær eru beittar eða kjósi að segja ekki frá. Þetta mál sé gott dæmi um hvers vegna það er.

„Það er ekkert skrýtið við það að konur kæri ekki ofbeldið sem þær voru beittar eða að þær segi ekki frá því. Réttarvörslukerfið passar vel upp á það. Alltaf skulu finnast nýir og nýir angar þess sem nýttir eru á einhvern hátt gegn brotaþola – til þess að hræða, þagga og lítilsvirða. Þessu verður að linna.“

Stígamót skora því á Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra, að skipa nýjan vararíkissaksóknara. Á alla stjórnmálaflokka í framboði að beita sér fyrir úrbótum í réttarkerfinu hvað varði ofbeldisbrot. Og alla frambjóðendur til stjórnar KSÍ að gera upp við sig hvort þeim finnist eðlilegt að Sigurður G. gegni trúnaðarstörfum fyrir sambandið.

„Stígamót skora á:

Dómsmálaráðherra að skipa nýjan vararíkissaksóknara

Alla stjórnmálaflokka í framboði að leggja fram tillögur um hvernig megi tryggja að réttarkerfið verndi fólk gegn ofbeldi en sé ekki verkfæri í höndum þeirra sem beita því og hjálparkokka þeirra

Alla frambjóðendur til stjórnar KSÍ að gera upp við sig hvort þeim finnist eðlilegt að maður gegni trúnaðarstörfum fyrir hreyfinguna sem gengur fram með þessum hætti gegn brotaþola ofbeldis“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gunnar Smári hugleiðir meiðyrðamál

Gunnar Smári hugleiðir meiðyrðamál
Fréttir
Í gær

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum rannsakar mál þar sem faðir hennar er á meðal kærðra

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum rannsakar mál þar sem faðir hennar er á meðal kærðra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útgerðarmaður græddi 75 milljónir á nauðungarsöluhneykslinu í Reykjanesbæ – Krefur nú unga öryrkjann um milljón

Útgerðarmaður græddi 75 milljónir á nauðungarsöluhneykslinu í Reykjanesbæ – Krefur nú unga öryrkjann um milljón
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ríkið sem ætlar eingöngu að vera til á netinu: Þriðjungur íbúa búinn að sækja um flutning til Ástralíu

Ríkið sem ætlar eingöngu að vera til á netinu: Þriðjungur íbúa búinn að sækja um flutning til Ástralíu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“