fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
433Sport

Kári var fyrirliði í dag: ,,Maður er vanur að spila með strákum sem fatta þetta allir“

Helgi Fannar Sigurðsson
Sunnudaginn 5. september 2021 19:26

Kári Árnason í baráttunni í leiknum í dag. Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kári Árnason var fyrirliði Íslands í 2-2 jafntefli gegn Norður-Makedóníu í undankeppni Heimsmeistaramótsins 2022 í dag. Hann telur frammistöðuna að stórum hluta ekki hafa verið boðlega en sá þó einnig ljósa punkta.

Það gekk lítið sem ekkert upp hjá íslenska liðinu stærstan hluta leiksins. Þeim tókst þó að breyta 0-2 stöðu í 2-2 jafntefli með miklum karakter síðasta stundarfjórðung leiksins.

Brynjar Ingi Bjarnason og Andri Lucas Guðjohnsen skoruðu mörkin.

,,Þetta leit nú ekki vel út á köflum en við sýndum bara góðan anda og karakter að koma til baka og það skiptir máli,“ sagði Kári við RÚV eftir leik.

,,Það er verið að sjá hverjir eru tilbúnir í þetta og svo framvegis. Það voru margir sem komu vel út úr því, sérstaklega í seinni hálfleik. En fyrri hálfleikur var bara skelfilegur, heint út sagt. Við byrjuðum kannski ágætlega fyrstu 10 mínúturnar en hitt, það var ekkert jákvætt við það. Við lágum til baka, þorðum ekki að pressa og þeir fundu bil á milli okkar úti um allt.“

,,Jákvætt að koma til baka. Það voru strákar sem komu inn og stóðu sig með prýði.“

Mikil kynslóðaskipti eru að eiga sér stað hjá landsliðinu um þessar mundir. Kári reynir að hjálpa yngri leikmönnum.

,,Maður er að reyna að hjálpa þeim að fatta þennan leik, þetta er ekkert sjálfgefið. Þetta er allt öðruvísi heldur en klúbbafótbolti. Eins og ég segi, þessi fyrri hálfleikur var ekki boðlegur. Maður er vanur að spila með strákum sem fatta þetta allir, hafa verið í þessu lengi, spilað kannski í kringum 80-90 leiki, þá er þetta svolítið öðruvísi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Ótrúleg atburðarás í Afríku – Marokkó dæmdur sigur tveimur mánuðum eftir úrslitaleikinn

Ótrúleg atburðarás í Afríku – Marokkó dæmdur sigur tveimur mánuðum eftir úrslitaleikinn
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Valtýr lýsir því sem hann varð vitni að innan um hóp fólks í Garðabæ – „Það var ekki neitt lítið sem gekk á“

Valtýr lýsir því sem hann varð vitni að innan um hóp fólks í Garðabæ – „Það var ekki neitt lítið sem gekk á“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Ævintýri Norðmanna lokið eftir skell í Portúgal

Ævintýri Norðmanna lokið eftir skell í Portúgal
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Lineker skýtur á BBC

Lineker skýtur á BBC
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Segir hegðun Chelsea merki um lélegan undirbúning – Vildi aldrei gera þetta á ferli sínum

Segir hegðun Chelsea merki um lélegan undirbúning – Vildi aldrei gera þetta á ferli sínum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Carrick sagður leggja það til við stjórn United að þeir skipti um skoðun

Carrick sagður leggja það til við stjórn United að þeir skipti um skoðun
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sorglegt andlát 22 ára karlmanns sem var í leit að næsta tækifæri – Dánarorsök liggur ekki fyrir

Sorglegt andlát 22 ára karlmanns sem var í leit að næsta tækifæri – Dánarorsök liggur ekki fyrir