fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Hausverkur Arnars: Gylfi í farbanni – Lykilmenn meiddir og með COVID-19

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. ágúst 2021 09:15

©Anton Brink 2019 © 365 ehf / Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu mun í dag velja hóp sinn fyrir komandi verkefni í undankeppni HM. Liðið leikur þrjá heimaleiki gegn Rúmeníu, Norður-Makedóníu og Þýskalandi.

Ljóst er að það hefur verið vandasamt verk fyrir Arnar að smíða saman hóp en fjarvera lykilmanna er áberandi þegar komið er að landsliðsverkefni.

Flestum Íslendingum er kunnugt um stöðu Gylfa Þórs Sigurðssonar, þessi besti knattspyrnumaður  Íslands síðustu ár var handtekinn í júlí vegna gruns um um brot gegn barni. Gylfi Þór er laus gegn tryggingu fram í október en rannsókn lögreglu er í fullum gangi.

Alfreð Finnbogason, Sverrir Ingi Ingason og Hörður Björgvin Magnússon verða allir frá vegna meiðsla, allir þrír hefðu líklega verið í byrjunarliði Arnars Þórs í þessu verkefni.

Þá hafa bæði Aron Einar Gunnarsson og Rúnar Alex Rúnarsson verið í einangrun síðustu daga vegna COVID-19 smits en vonir standa til um að báðir verði klárir í verkefni landsliðsins.

Meiddir:
Alfreð Finnbogason
Sverrir Ingi Ingason
Hörður Björgvin Magnússon

Getty Images

Hafa glímt við COVID-19:
Aron Einar Gunnarsson
Rúnar Alex Rúnarsson

Staðan hjá Gylfa Þór:
Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson verður áfram laus úr haldi lögreglu gegn tryggingu til 16. október hið minnsta. Gylfi er til rannsóknar í Bretlandi, grunaður um kynferðisbrot gegn barni. Málið rataði í fjölmiðla í síðasta mánuði en Gylfi má ekki yfirgefa Bretland á meðan rannsókn stendur yfir.

©Anton Brink 2020

Jákvætt sumar:
Það eru þó ekki bara neikvæðir hlutir sem blasa við Arnari nú þegar hann far inn í verkefnið, landsliðið lék þrjá fína æfingaleiki í upphafi sumars. Brynjar Ingi Bjarnason kom þá inn í sitt fyrsta verkefni og var eins og klettur í vörn landsliðsins. Hann og Hjörtur Hermansson léku vel í hjarta varnarinnar, Guðmundur Þórarinsson nýtti tækifæri sitt vel í vinstri bakverði og Ísak Bergmann Jóhannesson sýndi snilli sína.

Fleiri leikmenn áttu góð verkefni en íslenska liðið þarf hið minnsta sex stig úr þessum þremur heimaleikjum til að eiga von á sæti í umspili um laust sæti á HM í Katar árið 2022.

Mynd/Getty
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Átján mánuðir í óvissu fyrir stjörnuna frá Úkraínu – Óvíst hvað gerist næst

Átján mánuðir í óvissu fyrir stjörnuna frá Úkraínu – Óvíst hvað gerist næst
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Szoboszlai svekktur með stuðningsmenn Liverpool – Biður um betri og meiri stuðning

Szoboszlai svekktur með stuðningsmenn Liverpool – Biður um betri og meiri stuðning
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Stórliðin bíða í röðum og vilja fá bakvörð Newcastle í sumar

Stórliðin bíða í röðum og vilja fá bakvörð Newcastle í sumar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Segir United að gleyma þessum kosti eftir helgina

Segir United að gleyma þessum kosti eftir helgina
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Harður á sínu og vill ekki sjá það að Carrick taki við

Harður á sínu og vill ekki sjá það að Carrick taki við
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Draumur Rashford gæti orðið að veruleika eftir kosningar helgarinnar

Draumur Rashford gæti orðið að veruleika eftir kosningar helgarinnar