fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
433Sport

Rekin eftir að hafa hringt í yfirmanninn og logið til um veikindi svo hún gæti upplifað sögulega stund – Planið virtist ætla að ganga upp þar til þetta gerðist

Helgi Fannar Sigurðsson
Laugardaginn 10. júlí 2021 10:30

Nina Farooqi á leiknum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nina Farooqi, 37 ára gömul ensk kona, var rekin úr starfi sínu eftir að upp komst um að hún hafi logið til um að vera veik til að komast á leik Englands og Danmerkur í undanúrslitum Evrópumótsins.

Vinkona Farooqi bauð henni óvænt á leikinn með stuttum fyrirvara. Vegna manneklu á vinnustað hennar sá hún ekki fram á að fá frí. Hún taldi sig því knúna til að hringja í yfirmann sinn og segjast vera orðin veik.

Planið virtist ætla að ganga upp þar til myndavélarnar á vellinum beindust að Farooqi og vinkonu hennar er þær fögnuðu jöfnunarmarki Englands. Þá gátu milljónir manna um allan heim, þar á meðal yfirmaður Farooqi, séð að hún var stödd á vellinum, alls ekki slöpp að sjá.

Farooqi hefði þó vissulega getað reynt að vera laumulegri en raun bar vitni. Til að mynda endurbirti hún Instagram-færslu frá sjónvarpskonunni Stacey Dooley, þar sem Farooqi sást í mynd.

Konan býr norðarlega í Englandi. Er hún tók lestina aftur heim frá Lundúnum, þar sem leikurinn fór fram, fékk hún símtal frá yfirmanni sínum. Hann sagði henni upp störfum í gegnum símann.

,,Þeir sögðust hafa séð mig á leiknum. Ég sagði þeim mínar ástæður en ég fékk enga samúð. Þetta er þeirra ákvörðun og afleiðing þess sem ég gerði,“ sagði Farooqi í viðtali við Telegraph. 

,,Það er smá eftirsjá, það vill enginn láta reka sig. En ég hefði hatað það að missa af leiknum. Ég myndi gera þetta allt aftur. Fótboltinn er lífið mitt,“ bætti hún við.

Yfirmaður hennar, Charlie Taylor, segir að hann hefði ekki leyft henni að missa af því einstaka tækifæri að fara á leikinn ef Farooqi hefði komið hreint fram.

,,Þetta eru spennandi tímar fyrir allt England. Við hefðum ekki látið hana missa af því tækifæri að komast á leikinn. Því miður laug starfsmaðurinn í þessu tilfelli. Það er brot í samningi okkar á milli svo við höfðum ekkert val,“ sagði Taylor. Hann bætti við að hann myndi gefa öllu starfsfólki sínu frí til að horfa á úrslitaleik Evrópumótsins á milli Englands og Ítalíu á sunnudag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Neymar er verulega ósáttur með Ancelotti

Neymar er verulega ósáttur með Ancelotti
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Blaðamaður Morgunblaðsins leggur til breytingar á lögum og reglum – Refsingar í dag of þungar

Blaðamaður Morgunblaðsins leggur til breytingar á lögum og reglum – Refsingar í dag of þungar
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Davíð Þór fer inn í stjórn ÍTF – Stefnir í arðgreiðslur í lok árs

Davíð Þór fer inn í stjórn ÍTF – Stefnir í arðgreiðslur í lok árs
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Barðist við tárin í beinni útsendingu og netverjar skjóta fast á hann – Ástæðan vekur nokkra furðu

Barðist við tárin í beinni útsendingu og netverjar skjóta fast á hann – Ástæðan vekur nokkra furðu
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Töfrar á Anfield í Meistaradeildinni – Tottenham úr leik þrátt fyrir öfluga frammistöðu

Töfrar á Anfield í Meistaradeildinni – Tottenham úr leik þrátt fyrir öfluga frammistöðu
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Óhugnanlegt atvik á Anfield í kvöld – Lenti á skilti og skar sig hressilega

Óhugnanlegt atvik á Anfield í kvöld – Lenti á skilti og skar sig hressilega
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Barcelona hamraði sjö mörkum á Newcastle og flaug áfram

Barcelona hamraði sjö mörkum á Newcastle og flaug áfram
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Vinicius Junior útskýrir fagn sitt í gær – Segir þetta ekki vanvirðingu

Vinicius Junior útskýrir fagn sitt í gær – Segir þetta ekki vanvirðingu