fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Fréttir

Sviðin jörð Aflbindingar – Guðmundur og Knútur fá fangelsisdóma og risasekt

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 5. júlí 2021 22:00

Samsett mynd. Merki Aflbindingar og hús Héraðsdóms Reykjaness.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eigendur járnabindingafyrirtækisins Aflbindingar voru rétt fyrir mánaðamótin dæmdir í skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu risahárra sekta fyrir skattsvik og peningaþvætti.

Eigendurnir heita Guðmundur Guðmundsson og Knútur Knútsson. Fyrirtæki þeirra, Aflbinding, á sér glæsta en þyrnum stráða sögu. Forverinn, Aflbinding ehf, varð gjaldþrota árið 2009. Aflbinding fékkst við járnabindingar fyrir staðsteypt mannvirki, eins og segir í frétt Viðskiptablaðsins frá 2014. Stóð Aflbinding að byggingu fjölmargra merkra bygginga, t.d. Höfðatorgs, Háskólans í Reykjavík og Hellisheiðarvirkjunar.

Eftir haustið 2008, á sama tíma og bankakerfið hrundi á Íslandi, fækkaði verkefnum Aflbindingar mikið. Skiptum í þrotabúinu lauk árið 2014, engar eignir fundust í búinu en lýstar kröfur voru upp á rúmlega 63 milljónir. Framkvæmdastjóri Aflbindingar, Knútur Knútsson, sagði við Viðskiptablaðið árið 2014:

„Við vorum búnir að leggja þúsundir tonna í alls konar byggingar. Þetta var komið upp í annað hundrað verkefni. Svo gerist það að haustið 2008 hverfur þetta gjörsamlega allt saman. Við förum úr 140 starfsmönnum árið 2008 niður í átta í desember sama ár.“

Risasektir á báða mennina

Árið 2010 stofnuðu þeir Guðmundur og Knútur fyrirtækið Aflbinding – járnverktakar, en það fyrirtæki hefur nú líka verið afskráð. Guðmundur var stjórnarformaður félagsins en Knútur framkvæmdastjóri.

Þeir félagar voru ákærðir fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti fyrir meirihluta ársins 2017, samtals að fjárhæð rúmlega 37 milljónir króna.

Guðmundur var sakaður um að hafa ekki staðið skil á greiðslu opinberra gjalda fyrir rúmlega 29 milljónir og Knútur fyrir um 32,4 milljónir.

Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 29. júní síðastliðinn. Voru þeir félagar sakfelldir. Knútur var dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hann er jafnframt dæmdur til að greiða 70 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs. Ef sektin verður ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins þarf Knútur að sitja í 70 daga fangelsi. Má telja líklegt að Knútur þurfi að sitja af sér sektina, án þess að nokkuð verði fjölyrt um það.

Hið sama má segja um Guðmund Guðmundsson sem hlaut einnig 7 mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm. Hans sekt er 66 milljónir og fimmhundruð þúsund. Þarf hann sömuleiðis að sitja 360 daga í fangelsi ef hann greiðir ekki sektina.

 

Dóminn má lesa hér

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Frá Kyrrahafi til Kalíningrad – Rússar eru hvergi öruggir

Frá Kyrrahafi til Kalíningrad – Rússar eru hvergi öruggir
Fréttir
Í gær

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“
Fréttir
Í gær

Páll segir borgarráð sýna sögu og menningu virðingarleysi og hunsa mótmæli íbúa – „Í stuttu máli er þetta leikrit“

Páll segir borgarráð sýna sögu og menningu virðingarleysi og hunsa mótmæli íbúa – „Í stuttu máli er þetta leikrit“
Fréttir
Í gær

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“