fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
433Sport

Pestin herjar á þýska hópinn fyrir stórleik kvöldsins

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 29. júní 2021 09:15

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veikindi herja á leikmenn þýska landsliðsins fyrir leik liðsins gegn Englandi í dag. Um er að ræða leik í 16 liða úrslitum en leikið verður á Wembley.

Ilkay Gundogan miðjumaður þýska liðsins er einn af þeim sem er tæpur eftir höfuðhögg, hann gat æft í hálftíma í gær en fann fyrir mikilli þreytu.

Toni Rudiger hefur ekkert æft vegna veikinda síðustu daga og Robin Gosens varð veikur í gær.

Ekki er um að ræða COVID-19 veikindi en önnur pest herjar nú á þýska hópinn. „Ilkay hefur verið að glíma við höfuðhögg, hann var skárri í dag en hefur fundið fyrir þreytu á æfingum,“ sagði Joachim Löw þjálfari liðsins.

„Við höfum tekið blóðprufu hjá hinum og þeir eru með veirusýkingu, kannski verða þeir betri á einum degi en við vitum það ekki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rice leiður að sjá stöðuna á sínu gamla félagi – Gæti sett þá í ansi erfið mál um helgina

Rice leiður að sjá stöðuna á sínu gamla félagi – Gæti sett þá í ansi erfið mál um helgina
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Svona er lið umferðarinnar – KR á flesta fulltrúa

Svona er lið umferðarinnar – KR á flesta fulltrúa
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Föðmuðu Arteta eftir að hann færði þeim slæm tíðindi

Föðmuðu Arteta eftir að hann færði þeim slæm tíðindi
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Gjörðir Simeone á leið af vellinum í gær vekja mikla athygli – Sjáðu myndbandið

Gjörðir Simeone á leið af vellinum í gær vekja mikla athygli – Sjáðu myndbandið