
Nú hafa verið birtar lokatölur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og eftir gífurlega spennandi slag um fyrsta sæti listans þá var það á endingu Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunvarsamvinnuráðherra sem hafði betur gegn Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, dómsmálaráðherra. Athygli vekur hversu neðarlega þingmennirnir Brynjar Níelsson og Sigríður Á. Andersen höfnuðu, en sú síðarnefnda er ekki meðal átta efstu á lista og Brynjar aðeins í fimmta sæti. Bæði sóttust þau eftir öðru sæti listans.
Lokaniðurstaðan er því þessi: