fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Stjórnvöld í Rúanda jákvæð í garð þess að hýsa hælisleitendur fyrir dönsk stjórnvöld

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 10. apríl 2021 17:00

Sýrlenskir flóttamenn. Mynd:Wikimedia Commons/ Mstyslav Chernov

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnvöld í Rúanda hafa lýst sig jákvæð í garð þess að hýsa miðstöð fyrir fólk sem sækir um hæli í Danmörku. Löndin eiga nú þegar í samstarfi á sviði flóttamannamála. Hugmyndin er að fólk, sem sækir um hæli í Danmörku, verði flutt til Rúanda og bíði þar í móttökumiðstöð á meðan mál þeirra fá afgreiðslu í Danmörku.

Þetta er hornsteinninn í stefnu ríkisstjórnar jafnaðarmanna hvað varðar málefni hælisleitenda. Fram að þessu hafa engin lönd lýst sig reiðubúin til að hýsa hælisleitendur fyrir Danmörku en nú eru segja stjórnvöld í Rúanda að þau séu jákvæð í garð hugmynda þar um. Jótlandspósturinn skýrir frá þessu. Fram kemur að blaðið hafi leitað svara hjá sendiráðum nokkurra ríkja um þetta og hafi þau öll svarað nei nema sendiráð Rúanda.

Þar fengust þau svör að Rúanda sé nú þegar með aðstöðu til að hýsa hælisleitendur og að landið meti samstarfið við Dani á þessu sviði mikils og sé opið fyrir nýju samstarfi og hugmyndum sem geta leitt til þess að hægt sé að bjóða hælisleitendum upp á viðeigandi aðstöðu.

Löndin vinna nú þegar saman á þessu sviði og hafa Danir styrkt Rúanda um sem svarar til um 450 milljóna íslenskra króna fyrir að taka á móti flóttamönnum sem sitja fastir í Líbíu. Danir tóku á síðasta ári á móti 200 flóttamönnum frá Rúanda. Mattias Tesfaye, ráðherra útlendingamála, hefur hrósað Rúanda fyrir að vera „framsækið“ land sem gegni „ótrúlega mikilvægu hlutverki“.

Mannréttindasamtök hafa hins vegar bent á umfangsmikil vandamál í Rúanda, þar sem pólitísk skoðanakúgun sé stunduð, landið fékk aðeins 21 stig af 100 mögulegum í síðustu samantekt Freedom House á frelsi í löndum heims.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Vísindamenn segja að dómsdagur verði þennan dag – Ekki langt undan

Vísindamenn segja að dómsdagur verði þennan dag – Ekki langt undan
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið

Fann sjaldgæf Pokémon-spil við tiltekt á æskuheimilinu – Getur greitt fyrir draumabrúðkaupið
Pressan
Í gær

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur
Pressan
Í gær

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tilraun til að setja met endaði með harmleik

Tilraun til að setja met endaði með harmleik