Einar Gautur Steingrímsson lögmaður krefst þess að Barnaverndarnefnd Reykjavíkur segi af sér. Þetta gerir lögmaðurinn í einfaldri yfirlýsingu á Facebook-síðu sinni: „Barnaverndarnefnd Reykjavíkur verður að segja af sér.“
Tilefnið er mál sem fjallað var um á Vísir.is í fyrradag, en þar kemur fram að starfsmenn Barnaverndar Reykjavíkur og Barnaverndarnefndar Reykjavíkur hafa verið kærðir til lögreglu vegna meintra lyga um móður í erfiðleikum.
Í kærunni segir lögmaður konunnar að rangt sé farið með staðreyndir um hegðun konunnar í stefnu að forsjársviptingarmáli gegn henni. Í gögnum með stefnunni sé því ranglega haldið fram að hún hafi mætt illa í boðuð viðtöl, takmarkað nýtt sér stuðning og ekki sinnt boðuðu eftirliti. Segir í kærunni að hún hafi þvert á móti mætt í næstum öll boðuð viðtöl og hún hafi sinnt stuðningsúrræðum vel.
Sagt er að viðhorf Barnaverndarnefndar Reykjavíkur til konunnar hafi breyst til hins verra í kjölfar þess að hún féll einu sinni á vímuefnaprófi og að nýr starfsmaður hjá nefndinni tók við máli hennar í desember 2019. Þvert gegn því sem stendur í gögnum barnaverndarnefndarinnar um frammistöðu konunnar hafi hún mætt í 21 vímuefnapróf frá því í janúar 2020 og hafi nánast alltaf skilað hreinu prófi.
Í kærunni segir, skv. frétt Vísis:
„Í úrskurðum barnaverndarnefndar og greinargerðum starfsmanna embættisins virðist afbökun á staðreyndum og raklaus ósannindi vera notuð kerfisbundið til að varpa rýrð á kæranda og í þeim tilgangi að svipta hana börnum hennar. Að slíkt sé framið endurtekið, ítrekað, af hálfu opinberra starfsmanna, í þeim tilgangi að slíta sundur móður og börn, er grafalvarlegt og skv. alm. hgl. glæpsamlegt. Það þarf ekki að útskýra mannréttindabrotin, sem í þessu felast einnig. Öll gögn sem sanna þessa glæpi eru lögð fram með kærunni. Hæstiréttur hefur litið mun vægari glæpi opinberra starfsmanna, mjög alvarlegum augum. Hafa verður í huga, hversu ríkt og mikilvægt verndarandlag er hér um að ræða, börn kæranda og friðhelgi einkalífs og fjölskyldu.
Er þess krafist, að þeir sem bera ábyrgð á framangreindum brotum, verði látnir sæta ábyrgð.“
Einar Gautur lögmaður skýrir frekar afstöðu sína í ummælum undir færslu sinni á Facebook. Hann segir að sér hafi orðið ómótt við að sjá það sem hann kallar lögleysu, valdníðslu og lygar gagnvart konunni. Þá segist hann vonast til þess að Barnaverndarnefnd Reykjavíkur fari í meiðyrðamál við sig vegna þessara ummæla en hann gerir sér litlar vonir um að svo verði:
„Ég hef séð til þeirra þvílíka lögleysu, valdníðslu og lygar að þeir verða að hætta. Þá hef ég í huga málið hér neðar á síðu minni. Þetta fólk verður að fara frá. Mér varð í alvöru ómótt þegar ég sá hvernig menn höguðu sér. Það á að taka á þessu núna en ekki eftir 30 ár eins og hefur tíðkast. Vonandi fara þeir í meiðyrðamál við mig svo hægt sé að rétta um fullyrðingar mínar. Hef enga trú á því að þeir leggi í þá vegferð, því miður.“