fbpx
Miðvikudagur 11.júní 2025
Fréttir

Ríkið tekur Tesluna af Hafþóri Loga – Aflaði sér átta milljóna með „refsiverðum brotum“

Heimir Hannesson
Föstudaginn 29. janúar 2021 17:03

Myndin sem Hafþór birti af þeim félögum í Amsterdam. mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Hafþóri Loga Hlynssyni, en hann var í nóvember árið 2018 fundinn sekur um fjárþvætti í héraðsdómi.

Hafþór Logi á sér nokkuð langan sakaferil. Fjárþvættisdómurinn yfir honum er sá tólfti sem hann hlýtur frá því honum var fyrst gerð refsing árið 2003. Hafþór er 34 ára gamall.

Forsaga málsins er sú að Hafþór var handtekinn árið 2017 og í framhaldi handtökunnar var húsleit framkvæmd á heimili hans. Reyndist Hafþór hafa falið tæplega tvær milljónir  í rúmdýnu sinni, vera með um hálfa milljón í vasanum og um 700 þúsund í leynihólfi sem falið hafði verið á bakvið innréttingu í eldhúsi hússins. Í dómnum kemur fram að Hafþór er öryrki og þiggur öryrkjabætur, um 250 þúsund krónur á mánuði. Engu að síður ók hann um á Teslu og bjó í 320 fermetra einbýlishúsi. Hafþór gaf þá skýringu á vellystingum sínum að hann hafi búið í húsinu með einum til og þeir væru að leita sér að þriðja aðila til að „leigja með.“

Þá útskýrði Hafþór hið mikla magn seðla sem fundust heima hjá honum þannig að hann hefði fengið peninginn að láni hjá vini sínum. Tesluna sagðist Hafþór svo hafa keypt sér að hluta til með láni en hinn hluti kaupvirðisins hafi fengist frá tryggingafélaginu VÍS sem bætur vegna ökutækjatjóns.

Í ljósi afbrotasögu Hafþórs og annarra kringumstæðna þótti sannað að Hafþór hefði aflað sér talsverða tekna af „refsiverðum brotum,“ eða rúmlega átta milljóna. Var Hafþór því dæmdur í 12 mánaða fangelsi í héraðsdómi fyrir peningaþvætti og gert að sæta upptöku seðlanna sem fundust á honum og á heimili hans og bifreiðarinnar af gerðinni Tesla.

Landsréttur þyngdi svo þennan dóm í dag í 20 mánaða fangelsi en önnur ákvæði um upptöku peninga og bifreiðar standa óhreyfð.

Hafþór Logi varð þjóðþekktur í þegar hann birti mynd af sér og Sindra Þór Stefánssyni í Amsterdam. Sindri hafði þá skömmu áður klifrað út um glugga á fangelsinu að Sogni þar sem hann sat í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á innbroti í Bitcoin gagnaver í Borgarnesi. Flaug Sindri til Stokkhólms og tók lest þaðan til Amsterdam þar sem hann hitti Hafþór. Sindri var síðar handtekinn í Amsterdam og flogið með hann heim til Íslands á ný, þar sem hann var að lokum dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Harmleikurinn í Austurríki: Þetta vitum við um byssumanninn

Harmleikurinn í Austurríki: Þetta vitum við um byssumanninn
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Formaður björgunarsveitarinnar í Grindavík ræðir stóra derhúfumálið og framtíð bæjarins

Formaður björgunarsveitarinnar í Grindavík ræðir stóra derhúfumálið og framtíð bæjarins
Fréttir
Í gær

Ástandið rólegra í Los Angeles en deilurnar rétt að byrja

Ástandið rólegra í Los Angeles en deilurnar rétt að byrja
Fréttir
Í gær

Jóhanna skrifaði grein um woke og kveikti bál hjá helstu samfélagsrýnum – „Ég held að þetta sé innanmein sem til dæmis drap flokkinn þinn“

Jóhanna skrifaði grein um woke og kveikti bál hjá helstu samfélagsrýnum – „Ég held að þetta sé innanmein sem til dæmis drap flokkinn þinn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Handtóku eftirlýstan mann sem falaðist eftir vændi í Langholtshverfi

Handtóku eftirlýstan mann sem falaðist eftir vændi í Langholtshverfi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona hljóðaði ályktun ungra sósíalista gegn formanni sínum – „Stærri fjölmiðlaumfjöllun gæti verið skaðleg flokknum“

Svona hljóðaði ályktun ungra sósíalista gegn formanni sínum – „Stærri fjölmiðlaumfjöllun gæti verið skaðleg flokknum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarna er meðalævilengdin mest – Ísland ekki á topp 10

Þarna er meðalævilengdin mest – Ísland ekki á topp 10
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fræg mál útlendinga sem fengu íslenskan ríkisborgararétt rifjuð upp – Tengdadóttir ráðherra, skákmaður, barn staðgöngumóður og fólk á flótta

Fræg mál útlendinga sem fengu íslenskan ríkisborgararétt rifjuð upp – Tengdadóttir ráðherra, skákmaður, barn staðgöngumóður og fólk á flótta