fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fréttir

Eldsvoði í Fellsmúla – Myndir af vettvangi – „Fólk er grátandi úti á götu“

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 28. janúar 2021 19:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um sjöleitið í kvöld var lögregla og slökkvilið kallað út í Fellsmúla 10-12 vegna eldsvoða í stóru fjölbýlishúsi. Samkvæmt heimildarmanni DV á vettvangi hefur slökkvuliði tekist að slökkva eldin, þó sé starfinu ekki lokið og enn verið að sprauta.

„Þú finnur sótlyktina langt út á götu. Fólk er grátandi úti á götu,“ sagði heimildarmaðurinn.

Þrír sjúkrabílar, tveir dælubílar, einn körfubíll og fimm eða sex lögreglubílar eru á vettvangi. Útlit er fyrir að mikill eldur hafi verið og mikið tjón hafi orðið, líklega algjört altjón. Líklega á eldurinn upptök sín úr eldhúsi. Íbúar hússins komust út af sjálfsdáðum.

Vegna eldsins finnst nú reykjarlykt víða um borgina.

Hér má sjá myndir af vettvangi:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Leigjendur höfðu betur í deilu sem sprottin var af þvagblettum

Leigjendur höfðu betur í deilu sem sprottin var af þvagblettum
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Eldri borgarar aldrei fleiri – Börnum fækkar hratt

Eldri borgarar aldrei fleiri – Börnum fækkar hratt
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða

Síminn og Sýn undirrita skilmálaskjal um kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar – Heildarvirðið metið á rúma 5 milljarða
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Ófrísk kona situr uppi með háan reikning

Ófrísk kona situr uppi með háan reikning
Fréttir
Í gær

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“

Ekkja kennara sem lést eftir hrekk kallar eftir vægð fyrir gerendurna – „Þetta er skelfilegur harmleikur“
Fréttir
Í gær

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju

Flóknar erfðadeilur gerðu allslausum manni afar erfitt fyrir – Fékk áheyrn að nýju