fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Fasteignaauglýsing vekur athygli – Veggfóður er ástæðan

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 12. nóvember 2020 06:50

Húsið er heldur hrörlegt. Mynd:Harcourts Packham

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Auglýsing frá ástralskri fasteignasölu hefur vakið nokkra athygli að undanförnu. Um er að ræða auglýsingu á þriggja herbergja húsi sem virðist vera í frekar slæmu ástandi ef miðað er við myndirnar sem fylgja. En það er ein af myndunum sem er ástæðan fyrir „vinsældum“ auglýsingarinnar á netinu að undanförnu.

Eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan er veggfóðrið ansi óvenjulegt og eiginlega bara óhugnanlegt. Margir spyrja sig af hverju fólk setji veggfóður sem þetta, sem sýnir litla stúlku með bangsa í fanginu standa í dyragætt, á stofuvegg.

Ansi óvenjulegt veggfóður. Mynd:Harcourts PackhamÁst

Ekki kemur fram í auglýsingunni hvort myndin sé af fyrrum íbúa í húsinu eða hvort það sé einhver önnur ástæða fyrir vali á veggfóðri. Það má telja líklegt að næsti eigandi hússins fjarlægi veggfóðrið, ef hann rífur ekki bara húsið til grunna en það er ekki í góðu standi og vægast sagt mikil vinna fram undan ef hressa á upp á það.

Hér er hægt að sjá fleiri myndir af húsinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér