fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Fljótlega verður hægt að fá svar úr kórónuveirusýnatöku á 10 mínútum

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 23. september 2020 17:50

Mynd: Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víða um heim vinna vísindamenn hörðum höndum við að þróa bóluefni gegn kórónuveirunni sem veldur COVID-19. En aðrir vinna að öðrum mikilvægum verkefnum tengdum heimsfaraldrinum. Þar á meðal eru vísindamenn við Syddansk háskólann sem í samvinnu við líftæknifyrirtækið Bioporto reiknar með að geta innan fárra mánaða kynnt til sögunnar kórónuveirupróf sem er hægt að nota heima og kemur með niðurstöðu á um 10 mínútum.

TV2 Fyn skýrir frá þessu. Fram kemur að nú taki það að jafnaði 24 til 48 klukkustundir að fá svar úr sýnatökum en markmiðið sé að stytta tímann niður í 10 mínútur.

Sýnatakan fer fram með því að sýni er tekið úr aftasta hluta munnsins með þar til gerðum pinna eða sköfu sem er síðan stungið ofan í vökva og eftir aðeins fimm til tíu mínútur liggur svarið fyrir.

Sótt verður um flýtimeðferð hjá heilbrigðisyfirvöldum svo hægt verði að taka þetta nýja verkfæri í notkun fyrir áramót en vinnan við það er nú á lokametrunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér