Stjórn Bjartrar framtíðar hefur ákveðið að slíta samstarfi við ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Ástæða slitanna er alvarlegur trúnaðarbrestur innan ríkisstjórnarinnar. Guðlaug Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar segir í samtali við RÚV.
„Í kjölfar frétta í dag þar sem fram kemur að bæði forsætisráðherra og dómsmálaráðherra hafi vitað af því hverjir undirrituðu meðmæli varðandi þessa uppreist æru og ekki deilt þeim upplýsingum með sínum samráðherrum var óskað eftir því að stjórn Bjartrar framtíðar yrði kölluð saman.“
Niðurstaða fundarins var að trúnaðarbrestur af þessari stærðargráðu væri of stór biti að kyngja. Haldin var kosning og voru 87 prósent sammála um að slíta samstarfinu. Það má því færa rök fyrir því að Sigríður Andersen hafi fellt stjórnina þegar hún upplýsti um það í kvöldfréttum að hún hefði greint Bjarna frá í sumar að faðir hans hefði skrifað meðmælabréf fyrir barnaníðing.
Eins og greint var frá í dag skrifaði Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, undir meðmælabréf sem mælti með því að Hjalti Sigurjón Hauksson fengi uppreist æru. Hjalti hafði fengið þungan dóm fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni.
Sigríður Andersen dómsmálaráðherra sagði í kjölfarið að hún hefði upplýst Bjarna um að faðir hans væri einn af meðmælendum. Í fréttum RÚV í dag kom fram að Sigríður hafi fengið þessar upplýsingar frá embættismönnum úr ráðuneytinu og hún hafi talið réttast að láta Bjarna vita.
Í frétt RÚV í kvöld kemur fram að stjórn Bjartrar framtíðar hafi komið saman í kvöld til að ræða stöðuna. Niðurstaða fundarins var sú að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu. Ríkisstjórnin hafði eins manns meirihluta áður, 32 þingmenn meirihlutans gegn 31 þingmanni minnihlutans.