fbpx
Þriðjudagur 04.nóvember 2025
433Sport

Lögreglumaður sakaður um hrottalega árás í miðbænum í nótt – Er knattspyrnumaður

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 16. febrúar 2020 15:30

Höfuðstöðvar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúm­lega tví­tugur piltur kveðst hafa slasast í við­skiptum við lög­reglu í mið­borg Reykja­víkur í nótt. Fréttablaðið segir frá málinu. Í myndbandi áður en atvikið á sér stað má sjá lögreglumann öskra á piltinn og skipa honum að leggjast í jörðina. Myndbandið hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum en var tekið úr út frétt DV vegna nýrra tíðinda í málinu.

Lögreglan hafnar þessum ásökunum sem drengurinn heldur fram. ,,Vegna frétta í fjölmiðlum í dag um handtöku ungs manns og lýsingu á tilurð áverka á honum, m.a. brotnar tennur og hugsanlegt kjálkabrot, vill Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu taka fram að eftir skoðun á myndefni frá vettvangi verður ekki annað ráðið en áverkir mannsins hafi verið tilkomnir áður en lögreglan var kölluð til og staðfestir myndefnið það,“ sagði lögreglan í yfirlýsingu.

Drengurinn kveðst hafa verið að taka upp handtöku í miðbænum þegar hann segist hafa orðið fyrir árás lögreglumanns. ,,Lög­reglu­maður æddi að honum og slengdi honum í jörðina með þeim af­leiðingum að hann skall með and­litið í jörðina,“ segir í frétt Fréttablaðsins um málið.

Lögreglumaðurinn sem í hlut átti er knattspyrnumaður í efstu deild karla, Pepsi Max deildinni.

Athugið að samkvæmt yfirlýsingu lögreglu virðist maðurinn hafa hlotið þessa áverka áður kom að samskiptum hans við lögreglumanninn

Í skýrslu læknis sem drengurinn birtir á Instagram segir að brotnað hafi upp úr tönnum hans, lögreglan segir að það hafi ekki gerst við handtökuna. ,,Brot upp úr 6 tönnum, og skurður á höku eftir áverka. Grunur um kjálkabrot,“ segir í skýrslu læknis um málið en drengurinn leitaði á læknavaktina eftir málið.

Fréttin hefur verið uppfærð. Vegna þeirra upplýsinga sem fram koma í yfirlýsingu lögreglunnar hefur myndband sem fylgdi fréttinni verið tekið út, sem og nafn og mynd af lögreglumanninum sem í hlut átti. 

 

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Gunnar Heiðar er nýr þjálfari HK

Gunnar Heiðar er nýr þjálfari HK
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Albert telur að verið sé að aumingjavæða unga íslenska drengi og tekur dæmi

Albert telur að verið sé að aumingjavæða unga íslenska drengi og tekur dæmi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Þetta voru nöfnin sex sem United skoðaði að ráða áður en Ten Hag var rekinn

Þetta voru nöfnin sex sem United skoðaði að ráða áður en Ten Hag var rekinn
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Syrgja táning eftir skelfilegt fjórhjólaslys um helgina

Syrgja táning eftir skelfilegt fjórhjólaslys um helgina
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Eru áhugasamir um Kane sem er opinn fyrir nýju ævintýri

Eru áhugasamir um Kane sem er opinn fyrir nýju ævintýri
433Sport
Í gær

Slot með augastað á leikmanni sem er nýkominn til Lundúnaliðsins

Slot með augastað á leikmanni sem er nýkominn til Lundúnaliðsins
433Sport
Í gær

Heimi Guðjónssyni heitt í hamsi – „Svo mætir Arnar Sveinn, grjóthaltu bara kjafti“

Heimi Guðjónssyni heitt í hamsi – „Svo mætir Arnar Sveinn, grjóthaltu bara kjafti“