fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Eyjan

Fjallar um vafasöm vinnubrögð Bjarna Ben og Samherja í grein um spillingu

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 10. desember 2019 09:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þjóðþingið í landinu samþykkir að fram fari rannsókn á skattaundanskotum og framlögum úr ríkiskassanum til ákveðins þjóðfélagshóps. Fjármálaráðherrann lætur gera skýrslurnar en ákveður að stinga þeim undir stól þar sem þær gætu komið honum illa. Eitt af fyrstu verkum hans, eftir að hann settist í ráðherrastólinn var að lækka framlög til eftirlitsstofnana en hann sjálfur hafði verið vændur um að bjarga háum fjárhæðum fyrir sig og ættingja sína þegar hann bjó yfir upplýsingum í opinberu starfi sem hann gegndi áður en hann varð fjármálaráðherra.”

Svo skrifar Bolli Héðinsson, hagfræðingur, í Fréttablaðið í dag hvar hann fjallar um Bjarna Benediktsson og spillingu á Íslandi.

Samherji hrellti andstæðinga

Hann Fjallar einnig um Samherja og vináttu Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við Þorstein Má Baldvinsson:

„Meðal atvinnurekenda í þessu landi er fyrirtæki sem lagði fæð á hvern þann sem ekki deildi skoðunum þess á hvernig ríkisvaldið ætti að gera þá sem ríkasta. Þeir sögðu grimmt upp fólki sem var ekki sammála þeim og settu sig í samband við forstöðumenn ríkisstofnana og annarra fyrirtækja auk innlenda og erlendra háskóla og kvörtuðu yfir að þar væru í vinnu einstaklingar sem væru á annarri skoðun en þeir. Einnig lögðu þeir sig fram við að fá uppgefin nöfn þeirra einstaklinga sem komu að málum í eftirlitsstofnununum, en það var einmitt þeira háttur, að hrella einstaklingana sem voru að rannsaka þá og freista þess að draga úr þeim móðinn. Einnig lokuðu þeir verksmiðju hjá sér um stundarsakir og létu það bitna á fólkinu í þorpinu þegar ein eftirlitsstofnunin tók þá til rannsóknar. Þess var alltaf gætt að einn nánasti vinur og samstarfsmaður forstjórans sæti í ríkisstjórn og helst að hann hefði málefni fyrirtækisins á sinni könnu.”

Bolli nefnir að svona hafi þetta gengið árum saman með vitneskju allra sem vildu vita, en aldrei hafi neitt verið gert í málunum. Þvert á móti hafi stjórnmálamenn ítrekað fengið endurnýjað umboð og Samherji notið virðingar í samfélaginu:

„Ofangreindur fjármálaráðherra telur að spilling sé bara í útlöndum og samtök atvinnurekenda í landinu telur sér sóma að því að hafa svona fyrirtæki innan sinna vébanda. Hvaða land er þetta? Er þetta ekki bara svona hjá „frumstæðum“ og fjarlægum þjóðum?”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kyle Walker í Burnley
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun