fbpx
Mánudagur 15.september 2025
Fókus

Hlynur: „Mín mesta áhætta er örugglega að taka íbúðalán“

Íris Hauksdóttir
Sunnudaginn 10. nóvember 2019 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hlynur Þorsteinsson útskrifaðist nýverið sem leikari frá Listaháskóla Íslands en hann fagnaði á dögunum eins árs afmæli frumburðar síns og segir því síðasta ár hafa verið bæði magnað og spennandi. Hlynur hlustar mikið á Dr. Footboll og viðurkennir að hann sé í grunninn fótboltabulla þrátt fyrir langa afneitun.

Hvar líður þér best?
Þegar ég er að keyra. Ég næ alltaf góðum fókus og að hreinsa hugann. Geri mikið af minni vinnu á rúntinum. Er oft að æfa texta á ferðinni. Svolítið pínlegt á löngu rauðu ljósi þegar ég gleymi mér aðeins.

Hvað óttastu mest?
Eftir að ég eignaðist strákinn minn áttaði ég mig á því hversu stutt er á milli lífs og dauða. Hef aldrei hugsað jafn mikið út í andardráttinn og mikilvægi hans eftir að ég varð pabbi.

Hvert er þitt mesta afrek?
Ég hef í raun og veru ekki afrekað eitthvað eitt sem er ótrúlega merkilegt. Ég lít frekar svo á að ég hafi átt mjög marga litla sigra í gegnum ævina sem saman mynda eitt risaafrek.

Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér?
Það var að leika draug á Árbæjarsafni. Mjög einmanalegt starf sem gekk út á það að hræða börn. Skrýtið að manni sé að ganga vel þegar börnin eru byrjuð að gráta.

Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Komið, sjáið, upplifið og farið. Líf eins manns án kaflaskila.

Hvernig væri bjórinn Hlynur?
Hann væri alveg ótrúlega góður.

Besta ráð sem þú hefur fengið?
Að nota neföndun þegar ég er að lesa upphátt texta sem ég hef aldrei lesið áður.

Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
Ég þoli ekki að vaska upp og er sparireikningurinn núna notaður með það að markmiði að safna fyrir uppþvottavél.

Besta bíómynd allra tíma?
Ég held mikið upp á Steve Martin og ég get ekki valið á milli Lonely Guy eða The Jerk.

Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?
Ég væri til í að vera rosalega góður í stærðfræði. Það tengist aðallega áhugasviði mínu en stærðfræði er eitthvað sem ég vildi alltaf vera miklu betri í þegar ég var yngri.

Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið?
Mín mesta áhætta er örugglega að taka íbúðalán hjá Landsbankanum. Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér þegar maður er með eitt svoleiðis á bakinu.

Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér?
Það fer rosalega í taugarnar á mér þegar fólk er að reyna að útskýra eitthvað og það notar „skilurðu“ á eftir útskýringunni. Endar oftast á því að það segir „skilurðu“ eftir hverja einustu setningu og ég hætti að hlusta og hætti því að skilja.

Hvað geturðu sjaldnast staðist eða ert góður í að réttlæta að veita þér?
Það hlýtur að vera brúnkakan hennar ömmu. Hún notar svo mikið smjör í kremið að það er alveg fáránlegt.

Hvað er á döfinni hjá þér?
Ég er sem stendur í Íslensku óperunni, Brúðkaupi Fígarós, en annars er ég í tökum á Netflix-mynd sem kemur vonandi út á næsta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Vinsælir þættir snúa aftur – Síðasti þáttur var sýndur árið 2019

Vinsælir þættir snúa aftur – Síðasti þáttur var sýndur árið 2019
Fókus
Í gær

„Nú bíð ég spennt eftir jólabókaflóðinu“

„Nú bíð ég spennt eftir jólabókaflóðinu“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Olli mér gífurlegum vonbrigðum enda tengdi ég ekkert við sögupersónuna Konráð“

„Olli mér gífurlegum vonbrigðum enda tengdi ég ekkert við sögupersónuna Konráð“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Komst að því að maðurinn sem hún bjó hjá var dæmdur barnaníðingur

Komst að því að maðurinn sem hún bjó hjá var dæmdur barnaníðingur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mætti með 19 árum yngri kærustuna upp á arminn

Mætti með 19 árum yngri kærustuna upp á arminn
Fókus
Fyrir 3 dögum

Birti óræð skilaboðum nokkrum dögum fyrir sambandsslitin

Birti óræð skilaboðum nokkrum dögum fyrir sambandsslitin
Fókus
Fyrir 4 dögum

Rifjar upp þegar hún smurði samlokur fyrir vændiskonur Charlie Sheen

Rifjar upp þegar hún smurði samlokur fyrir vændiskonur Charlie Sheen
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kristbjörg: „Að heyra í sprengjunum var óraunverulegt og skelfilegt“

Kristbjörg: „Að heyra í sprengjunum var óraunverulegt og skelfilegt“