fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Segir að allt sé í ‘fokki’ í Hafnarfirði: Menn eru komnir með upp í kok – ,,Það er flótti úr Krikanum“

Victor Pálsson
Laugardaginn 26. október 2019 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er allt í rugli hjá liði FH ef marka má orð Kristjáns Óla Sigurðssonar í hlaðvarpsþættinum Dr. Football.

Kristján fékk sér sæti með þeim Hjörvari Hafliðasyni og Mikael Nikulássyni í gær og ræddi þar stöðuna hjá FH.

Hann segir að það séu fjölmargir leikmenn sem vilji komast burt frá félaginu þessa stundina en sumir eru fastir vegna samnings.

Ólafur Kristjánsson er þjálfari FH en hann nær ekki til leikmannana, að sögn Kristjáns.

,,Það er allt í fokki í Krikanum og ekki í fyrsta skiptið og ekki í það síðasta,“ sagði Kristján Óli.

,,Leikmenn eru komnir með upp í kok. Þjálfarinn er ekki að ná til leikmanna og það er flótti úr Krikanum og þá er kannski erfiðara að flýja.“

,,Það er annað ef þú ert ekki með samning og þá geturðu farið. Jónatan Ingi og fleiri leikmenn þeir bara geta ekki meir og það er spurning hvað gerist.“

,,Kókópöffs kynslóðin höndlar ekki smá karlmennsku.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar

Sagður hafa mikinn áhuga á því að fara til Bayern í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham

Vilja losa sig við mann sem þeir keyptu í janúar – Er launahæsti leikmaður Tottenham