fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Ítalir sjá um loftrýmisgæslu við Ísland – Von á 140 manna herliði

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 20. september 2019 20:00

Herþotur á Keflavíkurflugvelli Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju með komu flugsveitar ítalska flughersins til Íslands í næstu viku.

Um 140 liðsmenn ítalska flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með sex F-35 orrustuþotur. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 26. september til 4. október.

Loftrýmisgæslan verður í samræmi við loftrýmisáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland og fyrirkomulagið verður með sama hætti og verið hefur.

Flugsveitin verður með aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli en þetta er í annað sinn á þessu ári sem ítalski flugherinn er hér á landi við loftrýmisgæslu. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki fyrir lok október.

Landhelgisgæsla Íslands annast verkefnið í samvinnu við Isavia.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra páskaeggjadramað

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra páskaeggjadramað