fbpx
Miðvikudagur 17.september 2025
Fréttir

Er morðingi Nathalie fundinn? – Hvarf sporlaust 17. ágúst

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 31. ágúst 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við sögðum frá því í frétt um daginn að þýskrar stúlku að nafni Nathalie Minuth er saknað og hefur ekkert spurst til hennar  síðan laugardagskvöldið 17. ágúst. Málið þykir hið dularfyllsta og hefur vakið mikinn óhug í Þýskalandi.

Nathalie er 23 ára gömul, á 24. ári, og er frá bænum Stadum, rétt utan við Flensburg í Slesvík-Holstein. Það sást til hennar í heimabænum Stadum nálægt leikskólanum í bænum á laugardaginn. Um kvöldið fór hún tæplega 10 kílómetra leið í bæinn Shafflund með strætisvagni. Ekki er vitað til að hún eigi neina ættingja eða vini þar og enginn áttar sig á því hvaða erindi Nathalie gæti hafa átt í þennan bæ.

Persónuskilríki Nathalie fundust í Shafflund sem gerir ráðgátuna enn dularfyllri. Sumir hafa velt fyrir sér hvort hún hafi látið sig hverfa og hafið nýtt líf undir öðru nafni. Þetta þykir þó öllum sem þekkja til hennar mjög ólíklegt vegna þess að Nathalie er talin vera mjög ábyrg og áreiðanleg.

Lögregla útilokar ekki að einhver hafi numið konuna á brott og skilið skilríki hennar eftir á almannafæri.

Grunaður maður í haldi lögreglu

Lögreglan hefur nú handtekið 46 ára gamlan vörubílstjóra vegna málsins. Tjáir hann sig ekki við lögreglu. Talið er að Nathalie hafi kynnst manninum á internetinu. Þess má geta að Nathalie sóttist eftir starfi við umhirðu hesta og lögregla útilokar ekki að henni sé haldið fanginni – þetta eru á meðal þeirra upplýsingabrota sem birtast í fjölmiðlum um stúlkuna. Það skýrist vonandi í næstu viku hvort maðurinn í haldi lögreglunnar veit eitthvað um hvarf Nathalie.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Fékk neitun um ríkisborgararétt vegna 10 þúsund króna

Fékk neitun um ríkisborgararétt vegna 10 þúsund króna
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sviplegt fráfall – Söngvari At the Gates látinn aðeins 52 ára að aldri

Sviplegt fráfall – Söngvari At the Gates látinn aðeins 52 ára að aldri
Fréttir
Í gær

Fyrrverandi fallhlífarhermaður fyrir dóm vegna morða sem áttu sér stað fyrir rúmum 50 árum

Fyrrverandi fallhlífarhermaður fyrir dóm vegna morða sem áttu sér stað fyrir rúmum 50 árum
Fréttir
Í gær

„Bleika slaufan hefur alltaf snert við mér“

„Bleika slaufan hefur alltaf snert við mér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kourani verður vísað úr landi þegar hann losnar úr fangelsi

Kourani verður vísað úr landi þegar hann losnar úr fangelsi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Leggja til að Ísrael keppi undir hlutlausum fána í Eurovision – Til að komast hjá „niðurlægjandi brottrekstri“

Leggja til að Ísrael keppi undir hlutlausum fána í Eurovision – Til að komast hjá „niðurlægjandi brottrekstri“