fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Fókus

Bjarki Heiðar segir feminisma gera konur óhamingjusamar: „Ég ætla ekki að fórna mínum réttindum fyrir konu, bara af því að hún er kona“

Með 150 þúsund áhorf á myndskeið þar sem hann segir feminista tefla fram röngum skoðunum – „Feministar vilja segja konum að hætta að vera heimavinnandi húsmæður“

Auður Ösp
Mánudaginn 8. maí 2017 19:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég held að við munum ekki ná fram jafnrétti með feminisma af því að grundvallarhugsunin þar er röng,“ segir Bjarki Heiðar Bjarnason, laganemi og þriggja barna faðir í myndskeiði á Youtube síðu sinni sem ber heitið „Hvernig feminismi gerir konur vansælar.“ Myndskeiðið hefur fengið tæplega 150 þúsund áhorf síðan í mars. Bjarki viðrar þar skoðanir sínar á jafnrétti karla og kvenna á vinnumarkaði og segir það vera í náttúrulegu eðli kvenna að velja svokölluð „kvennastörf.“

Myndskeiðið birtir Bjarki á Youtube rás sem hann heldur úti ásamt eiginkonu sinni Evu Ösp Matthíasdóttur en rásin ber hetir Our Journey. Í lýsingu segja hjónin meðal annars að rásin sé vettvangur þeirra til deila hinum ýmsu skoðunum sínum, byggja brýr á milli fólks og ýta undir samkennd og ást. Ljóst er að fólk skiptist í tvær fylkingar varðandi skoðanir Bjarni en 180 manns smella á „líkar við“ hnappinn við myndskeiðið á meðan 183 einstaklingar smella á hnappinn sem gefur til kynna hið gagnstæða.

Í myndskeiðinu segir Bjarki karlmenn vera ábyrga fyrir því að feminismi sé til, þar sem þeir hafi í gegnum aldirnar komið illa fram við konur. „Konur, þið hafið rétt á því að vera reiðar. Mér þykir leitt hvernig búið er að koma fram við ykkur í öll þessi ár,“ segir Bjarki og bætir við að jafnfrétti náist ekki með því að jafna hlutföll karla og kvenna, til dæmis á vinnumarkaði, heldur muni jafnrétti nást þegar öllum er frjálst að velja hvað þeir vilja gera í lífinu. „Feministar vilja segja konum að hætta að vera heimavinnandi húsmæður. Mig langar að leggja orð í belg varðandi það. Varðandi það að vera heimavinnandi, þar sem maðurinn vinnur úti og konan er heima. Feministar segja að það sé ómerkilegra val að vera heimavinnandi. Þeir segja að það sé í sjálfu sér slæmt að vera heimavinnandi. Þær láta eins og maðurinn sé á einhvern hátt æðri en konan ef að hann er að vinna úti. Ég er ekki sammála því,“ segir Bjarki þvínæst og nefnir sem dæmi að það að vera heimavinnandi húsmóðir sem sér um uppeldi barna sinna sé ekkert síðra starf heldur en að vera til dæmis bankastjóri.

„Er eitthvað betra að vera bankastjóri heldur en þriggja barna heimavinnandi móðir? Ég held ekki. Það er ekkert merkilegra að vera bankastjóri heldur en þriggja barna móðir,“ segir Bjarki. „Svo segja feministar að það megi ekki vera til karlastörf og kvennastörf. Ég gæti ekki verið minna sammála því. Ég trúi því virkilega konur eigi alltaf eftir að velja önnur störf heldur en karlar, út frá þeirra náttúrulega eðli.“

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=lvLFeMg9LDk&w=600&h=480]

Þá segir Bjarki að karlar ættu frekar að líta sér nær og hætta að koma illa fram við konur. „Ég ætla samt ekki að fórna mínum réttindum fyrir konu, bara af því að hún er kona. Auðvitað ekki. Ég ætla ekki að ávísa neinum mín réttindi, sama viðkomandi er svartur, rauðhærður eða annað. Við höfum öll sömu réttindi sem manneskjur.“ Þá hvetur Bjarki kynbræður sína til að vera góðir við eiginkonur sínar og nálgast konur á jafningjagrundvelli. Þá hvetur hann fólk til að gera það sem það vill gera í lífinu, óháð kyni.

Í öðrum hluta myndskeiðsins, sem birtist á Youtube vefnum þann 4.maí síðastliðinn segir Bjarki að í raun þurfi konur að líða fyrir baráttu feminista. „Af því að konur þurfa að líða fyrir þetta. Með þessu er verið að færa þær ennþá lengra burt frá því sem þær vilja í raun og veru,“ segir hann og kveðst þekkja dæmi um fjölmargar konur sem hafi lent í þeirri aðstöðu að verða ófrískar eftir skyndikynni og sitji einar eftir með sárt ennið eftir að barnsfaðirinn neitar að axla ábyrgð.
„Allra reiðustu konurnar, sem skilgreina sig sem feminista, þær eru í rauninni reiðar við karlkynið.“

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=Fq30oEEna_c&w=600&h=480]

Þá telur Bjarki að karlar muni ekki koma vel út úr baráttunni. „Við eigum eftir að þurfa að lifa við þessi feminisku viðhorf þá eigum við eftir að þurfa að fórna einhverju af því sem einkennir okkur sem karlmenn, það sem konur sækjast eftir,“ segir hann einnig og kveðst telja að feministar sækist eftir því karlæga. „Feminismi snýst um segir að við séum öll eins, menn og konur séu nákvæmlega eins að öllu leyti. Það er bara rangt. Við erum ekki eins. Við þurfum að standa upp og lýsa því yfir að við erum karlmenn. Við þurfum að læra af hvor öðrum strákar. Vera ábyrgir. Stoppa að vera strákar og verða karlmenn.“

Þá kemur Bjarki með heilræði í lokin sem hann beinir sérstaklegra til ungra stúlkna og kvenna. „Gerið það, reynið að gefa karlmönnum annað tækifæri. Bara reynið að fyrirgefa og fá lækningu meina ykkar ef þið eruð særðar, í staðinn fyrir að vera reiðar og reyna að breyta karlmönnum. Þeir munu ekki breytast. Sorrí stelpur, við karlmenn erum ekki fullkomnir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Veglegt sérblað um EM
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur gagnrýnir „ofurfyrirsætusnarlið“ sem fer sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum

Ragnhildur gagnrýnir „ofurfyrirsætusnarlið“ sem fer sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Móðir eyðilagði óléttutilkynningu í einstaklega vandræðalegu myndbandi

Móðir eyðilagði óléttutilkynningu í einstaklega vandræðalegu myndbandi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ellý Ármanns svarar spurningunni: Verður gott veður á Þjóðhátíð í Eyjum í ár?

Ellý Ármanns svarar spurningunni: Verður gott veður á Þjóðhátíð í Eyjum í ár?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ísak um atvik í IKEA: „Það tók mig svona 40 sekúndur að ná tökum á aðstæðum eftir að ósköpin dundu yfir“

Ísak um atvik í IKEA: „Það tók mig svona 40 sekúndur að ná tökum á aðstæðum eftir að ósköpin dundu yfir“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn fékk áfall þegar rasísk mynd af honum frá háskólaárunum kom upp á yfirborðið – „Ég get ekki flúið fortíðina“

Þorsteinn fékk áfall þegar rasísk mynd af honum frá háskólaárunum kom upp á yfirborðið – „Ég get ekki flúið fortíðina“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ragna Sif innanhússhönnuður selur glæsilegt parhús á Kársnesi

Ragna Sif innanhússhönnuður selur glæsilegt parhús á Kársnesi