fbpx
Sunnudagur 22.mars 2026

Næsta mál, takk!

Svarthöfði
Sunnudaginn 23. júní 2019 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bús í búðir er eitt langlífasta þrætuepli íslenskrar stjórnmálasögu. Sem er nokkuð merkilegt í ljósi þess að hjá flestum er þetta ekki hjartans mál. Íslendingar eru fyllibyttur að eðlisfari. Við höfum alltaf getað reddað okkur áfengi og drukkið ótæpilega af því.

Svarthöfði man vel þá tíma þegar allir voru fullir, alltaf. Sjómenn héngu aldrei þurrir nema kannski rétt í lok hvers túrs og voru þeir þá fljótir að laga hallann þegar þeir komu í land. Bændur voru alltaf með brennivínspela í vasanum. Húsmæður drukku sérrí og létu barnungar barnapíur sjá um uppeldi barna sinna. Kokkar voru annáluð drykkjustétt, blaðamenn líka, svo ekki sé nú talað um blessaða þingmennina sem tóku misvitrar ákvarðanir í áfengissvima.

Hér á Íslandi var allt áfengi bannað um tíma og bjór ekki leyfður um áratuga skeið. Vertar þurftu að kreista og kremja ráðherra og bæjarstjóra til þess að fá vínveitingaleyfi. Miðað við þetta mætti halda að Ísland hefði verið fasistaríki eins og Saudi Arabía eða Noregur en raunveruleikinn var allt annar. Íslendingar hafa alltaf getað reddað sér í glas. Hvort sem það er með löglegum leiðum eða öðrum. Sprútt og landasalar voru hér á hverju horni. Flestar leigubílastöðvarnar buðu upp á „góða bíla“. Svo voru það þeir framtakssömu sem brugguðu í kjallaranum.

Bjórinn fagnaði nýlega þrjátíu ára afmæli sínu. Um hann var hart deilt á sínum tíma og þvert á flokka. Í seinni tíð hafa Sjálfstæðismenn eignað sér afnám bjórbannsins. Staðreyndin er þó sú að fjölmargir þingmenn flokksins börðust gegn bjórnum og löggjöfin var samþykkt á tíma vinstristjórnar. Sjálfstæðismenn hafa líka reglulega talað um bús í búðir. En það er aðallega til að höfða til yngri kjósenda. Allir vita að ef þeim væri alvara væru þeir löngu búnir að koma þessu í gegn. Jafnvel á þeim tíma þegar þeir sátu í ríkisstjórn með Viðreisn og Bjartri Framtíð komst málið ekki í gegn. Ástæðan er einföld: Ef þeir koma þessu í gegn, þá geta þeir ekki lengur barist fyrir þessu.

Hvaða hagsmuni hinn almenni Íslendingur hefur af því að hafa eða hafa ekki ríkiseinokun á áfengi er í besta falli óljóst. Það sem er morgunljóst er hins vegar að þessi umræða einkennist af sýndarmennsku á báða bóga og hefur allt of mikið vægi í þjóðfélagsumræðunni. Ef Svarthöfði væri einráður myndi hann einfaldlega leyfa þetta og áfengisauglýsingar í leiðinni. Eingöngu til þess að þetta mál væri úr sögunni og önnur og þarfari málefni kæmust á dagskrá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Gróflega misboðið yfir brandara og söngatriði hjá Gísla Marteini á föstudaginn – „Þetta er alls ekki fyndið. Í alvöru“

Gróflega misboðið yfir brandara og söngatriði hjá Gísla Marteini á föstudaginn – „Þetta er alls ekki fyndið. Í alvöru“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Yfirlýsing frá Breiðablik – Segja farið með rangt mál er varðar Gabríel Aron

Yfirlýsing frá Breiðablik – Segja farið með rangt mál er varðar Gabríel Aron
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Fáskrúðsfjarðargöngum lokað eftir bílveltu

Fáskrúðsfjarðargöngum lokað eftir bílveltu
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Njósnamálið afhjúpaði ófullnægjandi vistun viðkvæmra gagna hjá lögreglu

Njósnamálið afhjúpaði ófullnægjandi vistun viðkvæmra gagna hjá lögreglu
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Færsla Trumps um andlát Muellers vekur hörð viðbrögð – „Forsetinn er smásmugulegur, sjúkur og andstyggilegur maður“

Færsla Trumps um andlát Muellers vekur hörð viðbrögð – „Forsetinn er smásmugulegur, sjúkur og andstyggilegur maður“
EyjanFastir pennar
Fyrir 12 klukkutímum
Jón Gnarr skrifar: Frelsi
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Norður-Kóreu maraþoninu aflýst af dularfullum ástæðum – „Fáum líklega aldrei að vita ástæðuna“

Norður-Kóreu maraþoninu aflýst af dularfullum ástæðum – „Fáum líklega aldrei að vita ástæðuna“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Fettir fingur út í ársreikning í Fossvoginum – Segir að „allt myndi loga“ ef staðan væri svona hjá öðru félagi

Fettir fingur út í ársreikning í Fossvoginum – Segir að „allt myndi loga“ ef staðan væri svona hjá öðru félagi