Ákvörðun forsvarsmanna McDonald‘s í Bretlandi og Írlandi um að skipta plaströrum út fyrir pappírsrör á skyndibitastöðunum í landinu hefur valdið talsverðu fjaðrafoki, raunar skipt Bretum í tvær fylkingar.
Alls eru staðir McDonald‘s í Bretlandi og Írlandi 1361 talsins og er nú þegar byrjað að skipta plaströrum út fyrir pappírsrör, þó nýju rörin séu ekki fáanleg á öllum stöðunum. Þessi ákvörðun kom í kjölfarið á þrýstingi frá umhverfissinnum um að forsvarsmenn McDonald‘s myndu beita sér fyrir því að gera skyndibitastaðina umhverfisvænni.
Nýju rörin hafa hins vegar vakið upp hörð viðbrögð og margir eru ekki parsáttir við þessa nýbreytni. Einn viðskiptavinur, Martin nokkur Reed, hefur meira að segja hafið undirskriftasöfnun þar sem þess er krafist að skipt verði aftur yfir í plaströr á stöðum McDonald‘s. Rúmlega þrjátíu þúsund manns hafa skrifað undir. Þá hafa einhverjir viðskiptavinir viðrað þá hugmynd að hætta viðskiptum sínum við staðinn þar til plaströrin koma aftur.
Þegar að fréttist af undirskriftalistanum reis hins vegar hin fylkingin upp og finnst fráleitt að plaströrin snúi aftur til að geðjast viðskiptavinum staðarins – umhverfið sé mikilvægara.
Paul Pomroy, yfirmaður hjá McDonald‘s í Bretlandi og Írlandi, hefur látið hafa eftir sér, samkvæmt frétt Daily Mail, að pappírsrörin hafi verið tekin í notkun vegna óska frá viðskiptavinum.