fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Matur

Tóti líkir matarkúrum við trúarofstæki: „Fasískt sykur- og brauðhatur, ketó og hvað þetta rugl heitir allt saman“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Föstudaginn 15. febrúar 2019 12:30

Tóti er á Tótó-kúrnum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Leiðinlegasta fólk í heimi hefur leyst lífsgátuna og bara verður síðan, með hrossaflugur þráhyggjunnar í höfðinu, að troða visku sinni, lausnum og lífsstíl upp á aðra. Í þessu úldna mengi eru trúarbrjálæðingarnir vitaskuld verstir og hættulegastir,“ skrifar Þórarinn Þórarinsson, blaðamaður á Fréttablaðinu í bakþönkum blaðsins í dag. Heldur hann áfram og segir að fólk sem tileinki sér visst mataræði sé næstversta fólk sem hann þekkir.

„Þar fyrir utan eru engir verri en þeir sem hafa komist að því hvaða mataræði hentar þeim best og ætlast til þess að allir aðrir éti það sama. Og hvers vegna? Jú, þá lifi ég lengur, verð ekki of feitur, hressari og lífsglaðari. Í alvöru?“

Þórarinn, eða Tóti eins og hann er oftast kallaður, hefur enga trú á slíkum fullyrðingum.

„Ég hef enga trú á því að fólk sem leggst í sturlað matartrúboð sé í mjög góðu andlegu jafnvægi. Atkins, vegan, Scarsdale, lágkolvetnablabla, carnivore, fasískt sykur- og brauðhatur, ketó og hvað þetta rugl heitir allt saman hefur engu breytt um það að fólk er alltaf að drepast úr spiki og lífsstílssjúkdómum. Jafnvel bara leiðindum og krónísku andlegu harðlífi?“

Þá segist Tóti hafa unnið að því síðustu þrjá áratugina að þróa það sem hann kallar Tótó-kúrinn.

„Ég borða aldrei neitt fyrr en í fyrsta lagi eftir 18 á daginn. Forðast grænmeti og ávexti og drep hungrið niður yfir daginn með svörtu kaffi, sígarettum og kolsvörtu Kóka Kóla. Þetta virkar rosalega vel fyrir mig en mér dytti samt aldrei til hugar að reyna að troða þessum lífsstíl upp á nokkra aðra manneskju. Ekki nema hún höndli krónískt þunglyndi, síþreytu og að fá allar umgangspestar yfir sig af þreföldum þunga. Tótó-kúrinn virkar eiginlega bara fyrir fólk sem veit að langlífi er ofmetið og að lífið snýst um að njóta þess í mat og drykk á meðan maður getur og enda sem fallegt lík.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa