fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
433Sport

Mikið af atkvæðum fyrir Guðna og Geir að sækja: Fleiri segjast ætla að kjósa Guðna

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 7. janúar 2019 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Geir Þorsteinsson og Guðni Bergsson eru á leið í baráttu, báðir sækjast eftir því að verða formaður KSÍ, þegar kosið verður á ársþingi sambandsins í byrjun febrúar.

Guðni er sitjandi formaður en Geir lét af störfum fyrir tveimur árum, hann hafði starfað sem formaður sambandsins í tíu ár.

Geir kynnti um framboð sitt á laugardag í kjölfarið af því sendum við könnun á formenn og framkvæmdarstjóra liða í efstu tveimur deildunum á Íslandi.

50 aðilar fengu tækifæri til að taka þátt í könnunni en 28 aðilar svöruðu póstinum sem var sendur út síðdegis á laugardag og höfðu aðilar til hádegis í dag, til að svara. Svarhlutfall var því 56 prósent.

Boðið var upp á þrjá möguleika, hvort menn ætluðu að kjósa Guðna, Geir eða hvort aðilar væru óákveðnir.

32,1 prósent af þeim sem svöruðu segjast ætla að kjósa Guðna á meðan 28,6 prósent segjast ætla að kjósa Geir.

Það eru hins vegar flestir sem segjast vera óákveðnir eða 39,3 prósent segjast ekki hafa gert upp hug sinn. Það er því ljóst að baráttan um atkvæði verður hörð, margir eiga eftir að gera upp hug sinn af þeim sem tóku þátt í þessari könnun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Öflugur framherji sterklega orðaður við Arsenal eftir að þessi mynd birtist

Öflugur framherji sterklega orðaður við Arsenal eftir að þessi mynd birtist
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Kostulegt myndband – Sungu níðsöngva um Saka sem svaraði skemmtilega fyrir sig

Kostulegt myndband – Sungu níðsöngva um Saka sem svaraði skemmtilega fyrir sig
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord búin að skrifa undir alla pappíra

Liverpool og Feyenoord búin að skrifa undir alla pappíra
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ókvæðisorðum stöðugt hreytt í Greenwood – „Ég er viss um að köllin hafi áhrif á hann“

Ókvæðisorðum stöðugt hreytt í Greenwood – „Ég er viss um að köllin hafi áhrif á hann“
433Sport
Í gær

Hæstánægður þrátt fyrir áhuga Manchester City – ,,Væri að ljúga ef ég myndi segja eitthvað annað“

Hæstánægður þrátt fyrir áhuga Manchester City – ,,Væri að ljúga ef ég myndi segja eitthvað annað“
433Sport
Í gær

Áfall fyrir Manchester City – ,,Þetta lítur ekki vel út“

Áfall fyrir Manchester City – ,,Þetta lítur ekki vel út“