fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Fangageymslur fylltust í nótt – 110 mál inn á borð lögreglu

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 1. janúar 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alls komu hundrað og tíu mál inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá hálfátta í gærkvöld til hálfsjö í morgun. Mest var um líkamsárásir og afskipti af illa ölvuðu fólki og fylltust fangageymslur á lögreglustöðinni á Hverfisgötu um klukkan hálf sex í morgun. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Bílvelta varð á Kringlumýrarbraut um miðnættið. Ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og að vera án ökuréttinda. Sex til viðbótar voru stoppaðir í umferðinni, grunaðir um að undir áhrifum áfengis eða fíkniefna undir stýri. Eitt fíkniefnamál kom líka upp í nótt þar sem lagt var hald á þó nokkuð af E töflum.

Á þessari stundu hefur aðeins borist tilkynning um eitt  flugeldaslys en þar hlaust  bruni á bringu og hendi. Þá komu upp að minnsta kosti tvö tilvik þar sem eignaspjöll voru unnin á vinnuvélum með flugeldum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu

Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Bera fyrirtæki ábyrgð á hvíld starfsmanna sinna?: „Ofþreyta er talin valda milli 10-20% slysa“

Bera fyrirtæki ábyrgð á hvíld starfsmanna sinna?: „Ofþreyta er talin valda milli 10-20% slysa“
Fréttir
Í gær

Allt á suðupunkti í Kópavogi í aðdraganda kosninga: „Þetta heitir misbeiting valds“

Allt á suðupunkti í Kópavogi í aðdraganda kosninga: „Þetta heitir misbeiting valds“
Fréttir
Í gær

Ný leyniþjónusta í farvatninu í Svíþjóð – Ætlað að líkjast fremur MI6 en CIA

Ný leyniþjónusta í farvatninu í Svíþjóð – Ætlað að líkjast fremur MI6 en CIA