

Báðar konurnar sem slösuðust alvarlega við göngu í Fnjóskadal í dag eru komnar niður af fjallinu, önnur konan var flutt með þyrlu á sjúkrahús á Akureyri. Hina þurfti að flytja með sjúkrabíl til Akureyrar. Konurnar voru þrjár saman á göngu þegar þegar tvær féllu um hádegið og runnu hundruð metra niður fjallshlíð.
Ólafur Ólafsson hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg segir í samtali við Vísi að björgunin hafi gengið ágætlega miðað við aðstæður , mikill snjór og hálka sé á svæðinu. „Hún fór strax á sjúkrahús, hún var stabíl en mjög kalt. Við vorum að berjast við kuldann, halda á henni hita,“ sagði Ólafur. Hún hafi verið með meðvitund þegar sjúkraflutningamenn tóku við henni. Konan sem fór með þyrlunni mun vera meira slösuð.