
Skýrsla var í dag tekin af einum farþega í bílnum sem valt út af brúnni yfir Núpsvötn í vikunni með þeim afleiðingum að tvær konur og eitt barn létu lífið. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi var tekin skýrsla af einum farþeganum sem liggur á sjúkrahúsi. Í tilkynningunni segir:
„Í dag var tekin skýrsla af farþega í bifreið þeirri er valt úr af brúnni yfir Núpsvötn þann 27. desember s.l. Skýrslutaka fór fram á sjúkrahúsi í Reykjavík að viðstöddum túlki. Óvíst er hvenær skýrsla verður tekin af ökumanninum en hann er, eins og áður hefur komið fram, alvarlega slasaður. Börnin tvö munu vera á batavegi. Rannsókn málsins heldur áfram en upplýsingar um niðurstöður hennar verða ekki gefnar fyrr en að henni lokinni.“