fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Keypti flugmiða með stolnu greiðslukorti

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 29. desember 2018 13:20

Lögreglan á Suðurnesjum við störf sín - myndin tengist fréttinni ekki beint

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flugfarþegi sem kom til landsins í vikunni reyndist hafa notað greiðslukort til farmiðakaupanna sem hafði verið tilkynnt stolið. Honum var meinað að halda ferð sinni áfram með viðkomandi flugfélagi og ræddu lögreglumenn á Suðurnesjum við hann. Þeim tjáði hann að vinur sinn hefði keypt farmiðann fyrir sig.

Maðurinn hugðist síðan halda ferð sinni áfram með öðru flugfélagi en var þá gerð grein fyrir því að hann fengi ekki að bóka far með því.  Hann hugðist reyna fyrir sér á fleiri stöðum til að komast á áfangastað. Hann var kærður fyrir fjársvik.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni