fbpx
Mánudagur 09.júní 2025

Pixee Fox er háð lýtaaðgerðum – Sjáðu hana fyrir og eftir: „Ég hef aldrei upplifað mig sem mennska“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 10. desember 2018 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pixee Fox er háð lýtaaðgerðum. Hún hefur farið í yfir 200 aðgerðir í þeim tilgangi að líta út fyrir að vera lifandi teiknimyndafígúra. Nú eru læknar farnir að neita henni um fleiri aðgerðir því þeir hafa áhyggjur af geðheilsu hennar.

Pixee er 28 ára gömul frá Norður Karólínu í Bandaríkjunum.  Hún er viðfangsefni í þáttunum Botched sem eru sýndir á sjónvarpsstöðinni E!.  Lýtalæknar neituðu henni um frekari aðgerðir því þeir telja að hún þjáist af líkamsskynjunarröskun, sem er alvarleg og vangreind geðröskun og einkennist af því að einstaklingur fær þráhyggju fyrir einhverjum ímynduðum galla í útliti sínu.

Í þættinum segir Pixee frá því að hún hafi nýlega undirgengist augnháraígræðslu þar sem hár af kynfærasvæði hennar voru grædd í augnlokin hennar. Er hún fyrsta manneskjan í heiminum til að undirgangast slíka ígræðslu.

„Ég trúi ekki hversu margar aðgerðir Pixee hefur farið í síðasta árið. Ég hef aldrei nokkurn tímann vitað um annað eins“  sagði einn læknanna.

„Ég hef aldrei upplifað mig sem mennska, miklu frekar sem álf, ævintýraveru.“

Pixee gekkst nýverið undir sársaukafulla aðgerð þar sem kjálki hennar var meðal annars brotinn og endurmótaður til að minna meira á teiknimyndapersónu. Það tók hana ár að jafna sig eftir aðgerðina.

Pixee segist vera að vinna að útgáfu teiknimyndabóka í anda Wonder woman. Aðalpersóna bókanna verði byggð á henni og muni kljást við „alvöru vandamál“.

„Nú er ég færa ævisögu mína í söguform þar sem ég er ofurhetjan, ævintýri og skáldskapur sem byggir á mér“

Í þáttunum Botched vonaðist Pixee eftir því að komast í aðgerð til að færa til hárlínu hennar en ,eins og áður segir, þá neituðu læknarnir að framkvæma frekari aðgerðir á Pixee vegna líkamsskynjunarröskun sem þeir telja hana þjást af.

Svona leit hún út áður en lýtaaðgerðir gerðu hana óþekkjanlega.

 

Pixee Fox hefur meðal annars látið fjarlægja úr sér nokkur rif fyrir minna mittismál.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Portúgal vann Þjóðadeildina eftir vítakeppni

Portúgal vann Þjóðadeildina eftir vítakeppni
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Búinn að segja félaginu að hann vilji fara í sumar

Búinn að segja félaginu að hann vilji fara í sumar
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Handtóku eftirlýstan mann sem falaðist eftir vændi í Langholtshverfi

Handtóku eftirlýstan mann sem falaðist eftir vændi í Langholtshverfi
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Henderson á leið aftur í úrvalsdeildina

Henderson á leið aftur í úrvalsdeildina

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.