fbpx
Föstudagur 13.júní 2025
Pressan

Það er hættulegt að sofa með opinn glugga

Pressan
Sunnudaginn 8. júní 2025 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Niðurstaða vísindarannsóknar sýnir að það getur verið hættulegt að sofa við opinn glugga. Það voru vísindamenn við Johannes Gutenberg háskólann í Mainz í Þýskalandi sem rannsökuðu þetta og komust að þeirri niðurstöðu að hávaði sem berst inn, oft hávaði frá umferð, hafi neikvæð áhrif á líkamann og það jafnvel þótt fólk vakni ekki við hávaðann.

Thomas Münzel er aðalhöfundur rannsóknarinnar og niðurstaða hans er að hávaðinn valdi stressviðbrögðum sem hafi neikvæð áhrif á hjartað og auki því líkurnar á hjartaáfalli.

Hávaði hefur meiri áhrif á fólk að næturlagi en að degi til. Münzel segir að hávaðinn frá einum bíl, sem er ekið framhjá opnum glugga að næturlagi, hækki blóðþrýstingin og auki blóðfituna. Hann telur að hávaðinn geti einnig leitt til andlegra kvilla eins og kvíða og þunglyndis.

Niðurstaða rannsóknarinnar er skýr: Lokaðu glugganum áður en þú ferð að sofa, sérstaklega ef þú býrð þar sem vænta má mikils hávaða frá umferðinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Greta Thunberg hvergi bangin – „Okkur var rænt“

Greta Thunberg hvergi bangin – „Okkur var rænt“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Pabbi Elon Musk opnar sig um deilur sonarins við Donald Trump

Pabbi Elon Musk opnar sig um deilur sonarins við Donald Trump
Pressan
Fyrir 4 dögum

Blóðidrifin saga Benderfjölskyldunnar – Þau tóku á móti þreyttum ferðalöngum með góðvild

Blóðidrifin saga Benderfjölskyldunnar – Þau tóku á móti þreyttum ferðalöngum með góðvild
Pressan
Fyrir 4 dögum

Einbúinn lét bílskúr eftir sig þegar hann lést – Fjölskyldan fékk áfall þegar hún opnaði skúrinn

Einbúinn lét bílskúr eftir sig þegar hann lést – Fjölskyldan fékk áfall þegar hún opnaði skúrinn