fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Pressan

F-16 þota lenti í árekstri við óþekktan fljúgandi hlut

Pressan
Sunnudaginn 8. júní 2025 14:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt opinberum skýrslum lenti bandarísk F-16 orustuþota í árekstri við óþekktan fljúgandi hlut, UFO, þegar vélin var við æfingar yfir Arizona í janúar 2023.

Stjórnklefinn skemmdist og flugvélin var ónothæf um tíma. Þetta er aðeins ein af mörgum skýrslum um dularfulla hluti, sem er oft lýst sem drónum, sem fljúga yfir svæði hersins á þessum slóðum. Sérstaklega nærri mexíkósku landamærunum. Þrjú svipuð atvik voru skráð dagana eftir þetta atvik.

Bandaríska flugmálastjórnin segir að frá maí 2023 til júní 2024 hafi 757 tilkynningar borist um óþekkta fljúgandi hluti. Hlutirnir sjást of saman í hópum og fljúga mjög hátt yfir svæðum hersins. Þetta hefur vakið áhyggjur um þjóðaröryggi.

Bandarísk yfirvöld telja að sumir af þessum fljúgandi hlutum geti tengst starfsemi erlendra eiturlyfjahringja sem noti dróna til njósna og til að smygla fíkniefnum með því að notfæra sér tækni sem er erfitt að fylgjast vel.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Sydney Sweeney er byrjuð að selja baðvatnið sitt

Sydney Sweeney er byrjuð að selja baðvatnið sitt
Pressan
Fyrir 3 dögum

Rafmyntafjölskylda grípur til aðgerða í kjölfar mannrána

Rafmyntafjölskylda grípur til aðgerða í kjölfar mannrána