fbpx
Miðvikudagur 06.ágúst 2025
Fréttir

Skelfileg aðkoma í Staðarbyggðafjalli: „Þetta er hryllingur“

Auður Ösp
Fimmtudaginn 23. ágúst 2018 16:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meðfylgjandi ljósmyndir sem Einar Gíslason, íbúi í Eyjafjarðarsveit deilir á facebooksíðu sinni hafa vakið mikinn óhug. Þar gefur á að líta sauðfé úr sveitinni sem orðið hefur fyrir fólskulegri árás lausagönguhunda. Atvikið hefur verið tilkynnt til lögreglu.

„Þetta er hryllingur. Þeir eru ekki fundnir en fólki er brugðið,“ segir Einar í samtali við DV.is en hann er  eigandi annars lambsins. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem atvik af þessu tagi á sér stað í sveitinni. „Ég veit um eitt dæmi hér í fyrra sá hundur var aflífaður.“

„Í gær varð vart við óróleika í Staðarbyggðafjalli. Þegar að var gáð voru þar tveir hundar á ferð svartur og brúnn. Þeir voru búnir að drepa lamb og skaða annað svo mikið að það þurfti að aflífa það.Nú þarf að finna sökudólgana svo þetta endurtaki sig ekki,“ ritar Einar í færslunni.

Hann biðlar um leið til fólks á svæðinu  að hafa augun opin og láta vita ef vart verður við hundanna tvo, eða við  óróleika í fé í fjallinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Högg í maga Valsara
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Dularfullt mál í Fellabæ – Búið að skera hring í rúðuna – „Þetta er stór undarlegt“

Dularfullt mál í Fellabæ – Búið að skera hring í rúðuna – „Þetta er stór undarlegt“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir samkeppni skorta á lánamarkaði og hagnaður bankanna komi úr vösum viðskiptavina

Segir samkeppni skorta á lánamarkaði og hagnaður bankanna komi úr vösum viðskiptavina
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Barn féll í sjóinn við Reynisfjöru

Barn féll í sjóinn við Reynisfjöru